Aðalatriðið að fara ekki í „ásakanaleik fram og til baka“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. október 2021 21:30 Jón Ólafsson, prófessor á hugvísindasviði Háskóla Íslands. Vísir/Arnar Prófessor segir að óreiða í kringum endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi geti rýrt traust kjósenda á stjórnmálum. Aldrei muni nást algjör sátt um niðurstöðuna.
Ingi Tryggvason formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi sendir kærendum vegna framkvæmdar kosninganna kaldar kveðjur í svarbréfi sem birt var á vef Alþingis í dag - og hann skrifar undir fyrir hönd þriggja af fimm yfirkjörstjórnarmeðlimum. Ingi sakar til að mynda Guðmund Gunnarsson oddvita Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi um „mjög alvarlegar“ og órökstuddar aðdróttanir um að auðum kjörseðlum hafi verið breytt í seðil sem virðist gilt atkvæði - og þar sé raunar um að ræða refsiverðar sakargiftir. Þá sakar hann einnig Lenyu Rún Taha Karim, frambjóðanda Pírata, um refsiverðar sakargiftir og hafnar því sem hann kallar „aðdróttunum“ hennar um að hann hafi spillt kjörgögnum. Það hefur ekki dregið til jafnmikilla tíðinda í málinu í dag og í gær en tveir meðlimir yfirkjörstjórnarinnar, sem áður höfðu beðist undan því að gefa skýrslu í málinu, funduðu með undirbúningsnefnd kjörbréfanefndar í dag. Niðurstaðan þurfi að vera trúverðug Jón Ólafsson, prófessor á hugvísindasviði Háskóla Íslands sem leitt hefur starfshóp til að efla traust á stjórnmálum, segir að fyrir þá sem komi að endurtalningarmálinu ætti að skipta höfuðmáli að vinna af heilindum og hæfni. „Það er ekki nóg að segja bara: Já, hér eru færustu lögfræðingar búnir að gera það sem gera þurfti og komast að þeirri niðurstöðu sem hægt er að standa við heldur þarf líka að gæta þess að þessi niðurstaða sé fengin þannig að hún þyki trúverðug.“ Aldrei muni nást algjör sátt í málinu. „Aðalatriðið er þetta að detta ekki í það að fara í einhvers konar slag eða ásakanaleik fram og til baka,“ segir Jón. „Og ég held að við megum búast við því að ef það tekst ekki að leysa vel úr þessu eigum við eftir að sjá fólk taka þetta upp aftur og aftur.“
Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Alþingi Stjórnsýsla Alþingiskosningar 2021 Tengdar fréttir Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar. 20. október 2021 12:01 Segja öryggismyndavélar sýna fólk ganga inn og út úr salnum Kjarninn hefur greint frá því að á öryggismyndavélum við tvo innganga í sal þar sem óinnsigluð kjörgögn voru geymd í Norðuvesturkjördæmi sjáist fólk ganga inn og út á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar. 20. október 2021 10:28 Kynntu sér aðstæður á talningarstað í Borgarnesi Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis segir nefndina enn vera að afla gagna og reiknar með að hún fundi stíft þessa vikuna. 19. október 2021 20:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira
Meðlimir í yfirkjörstjórn neita að greiða sekt og kvitta ekki undir svör við kærum Lögreglustjórinn á Vesturlandi hefur boðið allri yfirkjörstjórn Norðvesturkjördæmis að ljúka máli sem varðar talningu atkvæða í kjördæminu með sekt. Samkvæmt heimildum fréttastofu ætla nefndarmenn ekki að greiða sektina og ágreiningur er um talninguna innan kjörstjórnarinnar. 20. október 2021 12:01
Segja öryggismyndavélar sýna fólk ganga inn og út úr salnum Kjarninn hefur greint frá því að á öryggismyndavélum við tvo innganga í sal þar sem óinnsigluð kjörgögn voru geymd í Norðuvesturkjördæmi sjáist fólk ganga inn og út á þeim tíma sem yfirkjörstjórn var heima á milli talningar og endurtalningar. 20. október 2021 10:28
Kynntu sér aðstæður á talningarstað í Borgarnesi Formaður undirbúningskjörbréfanefndar Alþingis segir nefndina enn vera að afla gagna og reiknar með að hún fundi stíft þessa vikuna. 19. október 2021 20:30