Í gæsluvarðhald eftir að hafa verið sakfelldur fyrir tilraun til manndráps ytra Máni Snær Þorláksson skrifar 17. mars 2023 12:47 Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um gæsluvarðhald yfir manninum. Vilhelm Gunnarsson Landsréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem handtekinn var hér á landi vegna evrópskrar handtökuskipunar. Til grundvallar handtökuskipuninni lá fyrir dómur útlensks áfrýjunardómstóls þar sem maðurinn var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn skal sæta gæsluvarðhaldi, þó ekki lengur en til 7. apríl næstkomandi.
Ekki kemur fram í hvaða landi maðurinn var dæmdur fyrir manndrápstilraunina. Í héraðsdómi kom hins vegar fram að hætta væri talin á því að maðurinn kynni að reyna að komast úr landi ef honum yrði ekki gert að sæta gæsluvarðhaldi. Hann væri erlendur ríkisborgari með takmörkuð tengsl við Ísland. Þá hafi hann vísvitandi verið í felum og komið sér undan lögreglu. Þá sagði í greinargerð með kröfu lögreglustjóra að maðurinn væri talinn hættulegur þar sem hann hefur hlotið þungan fangelsisdóm í útlöndum fyrir mjög alvarlegt brot. Réðst hann ásamt öðrum manni á brotaþola með kylfu, glerflöskum og sveðju. Taldi lögreglustjóri að gæsluvarðhald væri því einnig nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. Efnislegri meðferð á umsókn um alþjóðlega vernd synjað Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði manninn í fjögurra vikna gæsluvarðhald fyrir tæpri viku. Lögmaður mannsins krafðist þess að Landsréttur myndi fella úrskurð héraðsdóms úr gildi en til vara að vægari úrræðum verði beitt að því frágengnu að gæsluvarðhaldi verði markaður skemmri tími. Landsréttur taldi að það mætti ætla að maðurinn myndi reyna að komast úr landi, leynast eða koma sér með öðrum hætti undan fullnustu refsingar. Þá var tekið til hliðsjónar að Útlendingastofnun synjaði manninum í nóvember síðastliðnum um efnislega meðferð á umsókn hans um alþjóðlega vernd. Úrskurður Útlendingastofnunar var staðfestur með úrskurði kærunefndar útlendingamála og frestun réttaráhrifa var svo hafnað. Í kjölfar þess fór maðurinn huldu höfði í rúman mánuð en var svo handtekinn eftir ítarlega rannsókn. Þá segir í úrskurði Landsréttar að vægari þvingunarráðstafanir muni ekki koma að haldi við að tryggja að maðurinn komi sér ekki undan málsmeðferð. Úrskurður héraðsdóms var því, sem fyrr segir, staðfestur.
Dómsmál Hælisleitendur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Fleiri fréttir Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Sjá meira