Varði mark Midtjylland í Evrópudeildinni

Elías Rafn Ólafsson hefur spilað mjög vel fyrir Midtjylland á …
Elías Rafn Ólafsson hefur spilað mjög vel fyrir Midtjylland á tímabilinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Nikolas Dyhr bjargaði stigi fyrir Midtjylland þegar liðið tók á móti Rauðu stjörnunni í F-riðli Evrópudeildarinnar í knattspyrnu í Danmörku í kvöld.

Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en Dyhr skoraði jöfnunarmark Midtjylland á 78. mínútu.

Elías Rafn Ólafsson stóð á milli stanganna hjá Midtjylland sem er með 2 stig í þriðja sæti riðilsins. 

Rauða stjarnan er í efsta sætinu með 7 stig, Braga með 6 stig og Ludogorets með 1 stig í fjórða sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert