Íslendingurinn dæmdur í Danmörku

„Hvað sem öðru líður tel ég mikið umhugsunarefni hve harkaleg …
„Hvað sem öðru líður tel ég mikið umhugsunarefni hve harkaleg og margþætt viðurlög eru í Danmörku við slíku gáleysisbroti norræns ríkisborgara, eins og um hryðjuverk væri að ræða,“ segir Gísli Tryggvason lögmaður um mál skjólstæðings síns.

„Þessi töf var nú bara punkturinn yfir i-ið, við erum ekkert rosalega ánægðir með meðferð málsins í kerfinu, hann fékk til dæmis slæma meðhöndlun í haldi lögreglu án þess að ég geti tjáð mig um það í smáatriðum,“ segir Gísli Tryggvason lögmaður í samtali við mbl.is.

Dómur féll í gær í máli skjólstæðings hans sem ákærður var fyrir óðs manns akstur eða vanvidskørsel eins og það heitir í nýjum umdeildum dönskum lögum sem mbl.is hefur fjallað um samhliða máli Íslendingsins.

Töfin sem Gísli nefnir kom til af því að tölvukerfi danskra héraðsdómstóla varð óaðgengilegt í síðustu viku með þeim afleiðingum að dómsuppkvaðning, sem ráðgerð var á fimmtudaginn, frestaðist þar til í gær.

Fóru leikar svo fyrir héraðsdómi að dómari féllst á allar kröfur ákæruvaldsins, eignaupptöku bílaleigubifreiðar til ríkissjóðs, eins mánaðar óskilorðsbundið fangelsi, fjögurra ára ökuleyfissviptingu í Danmörku og sex ára endurkomubann til landsins – það síðasttalda nokkuð sem í fljótu bragði virðist ræna ökuleyfissviptinguna tilgangi sínum.

Greint var frá því í febrúar í fyrra hér á …
Greint var frá því í febrúar í fyrra hér á mbl.is þegar Lamborghini Huracán Spyder-bifreið, sem norski athafnamaðurinn Shakhwan Hamah Ameen keypti í Þýskalandi aðeins nokkrum klukkustundum áður en hann var stöðvaður á 236 kílómetra hraða, var gerð upptæk ríkissjóði Danmerkur en fyrir bifreiðina greiddi hann sem svarar til 39 milljóna íslenskra króna miðað við þáverandi gengi. Ljósmynd/Úr einkasafni

Aðeins látinn bera fimmtung málskostnaðar

Nefnir Gísli enn fremur ítrekaðar breytingar á ákæru og frestanir á málsmeðferð sem þætti er til þess hafi verið fallnir að valda umbjóðanda hans óþægindum, en ítarlega er greint frá þessum atriðum í fréttinni sem hlekkjuð er við hér að ofan.

„Eina glætan í þessu er að hann er bara látinn greiða fimmtung málskostnaðar vegna þessa klúðurs alls, danska ríkið tekur restina. Að öðru leyti var því miður fallist á allar kröfur handhafa ákæruvalds, fangelsi, endurkomubann, sviptingu ökuréttinda og svo auðvitað stóra málið, upptöku bílsins,“ segir Gísli.

Þetta seinasta er sérstaklega afdrifaríkt þar sem bílaleigan mun nú væntanlega gera kröfu á dómfellda um allt kaupverð bifreiðarinnar. Það mál þarf þó að reka á Íslandi.

„Já, nú þarf bílaleigan að sækja á leigutakann hér heima af því að þeir nýttu sér ekki það réttarfarshagræði að fá dóm fyrir sinni skaðabótakröfu í sakamálinu, rétt eins og hér á Íslandi er hægt að koma einkaréttarkröfum að í sakamáli í dönskum rétti en bílaleigan nýtti sér ekki þann kost. Þar með getum við tekið til varna fyrir íslenskum dómstólum komi sú krafa fram,“ segir Gísli.

Segir hann enn fremur að við rekstur slíks máls muni reyna á hvort það standist lög að láta Íslending sem ekki talar dönsku skrifa undir leiguskilmála á flóknu dönsku lagamáli þar sem enn fremur sé vísað til nýrra ákvæða laganna um óðs manns akstur sem tóku gildi 31. mars 2021.

Hvað með fangelsisdóminn, fær skjólstæðingur Gísla að afplána hann á Íslandi?

„Já, væntanlega má afplána þennan dóm með samfélagsþjónustu hér heima. Þessi dómur er innan þeirra marka sem leyfa samfélagsþjónustu í stað afplánunar í fangelsi,“ svarar Gísli. „Hvað sem öðru líður tel ég mikið umhugsunarefni hve harkaleg og margþætt viðurlög eru í Danmörku við slíku gáleysisbroti norræns ríkisborgara, eins og um hryðjuverk væri að ræða,“ bætir Gísli við.

Gísli er reiðubúinn að taka til varna fyrir hönd skjólstæðings …
Gísli er reiðubúinn að taka til varna fyrir hönd skjólstæðings síns fyrir íslenskum héraðsdómi þegar bílaleigan herjar á Íslendinginn nýdæmda og krefur hann um bílverðið. Ljósmynd/Aðsend

Veltir fyrir sér hvort nóg sé komið

Frestur til að áfrýja málinu til millidómstigsins landsréttar í Danmörku, en þar eru tveir dómstólar, Eystri og Vestri landsréttur, er tvær vikur og telur Gísli ekki tímabært að spá neinu um hvort þeir varnaraðilar taki það skref.

„Skjólstæðingur minn hugsar það mál og veltir því fyrir sér hvort nóg sé komið í sakamálaþættinum, málið er alla vega ekki búið hvað snertir þetta stóra fjárhagstjón vegna upptöku bílsins. Þetta er auðvitað óvenjuleg löggjöf sem heimilar að bíll þriðja manns [bílaleigunnar] sé gerður upptækur vegna brots ökumanns,“ segir Gísli Tryggvason lögmaður að lokum af þessu sérstaka máli Íslendings í Danmerkurheimsókn sem dró dilk á eftir sér en mbl.is fylgist áfram með því sem koma skal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka