Vel heppnuð æfing hjá íslenska hópnum en tæknivandamál hjá Corneliu Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa 13. maí 2022 13:04 Elín Eyþórsdóttir hljómaði óaðfinnanlega á æfingu íslenska hópsins og negldi hverja einustu nótu. EBU Rétt í þessu kláruðu Systur sína fyrstu formlegu æfingu á sviðinu fyrir lokakvöld Eurovision. Rennsli þeirra gekk mjög vel og hljómuðu systkinin virkilega vel á sviðinu. Blaðamenn eru viðstaddir æfinguna og er skemmtileg stemning í höllinni. Tveimur lögum á eftir Íslandi er það Svíþjóð sem á sviðið. Söngkonan Cornelia Jakobs er fulltrúi Svíþjóðar í ár með lagið Hold Me Closer. Eitthvað tækniklúður var í upphafi æfingar Corneliu og þurfti hún að hætta mjög fljótt að syngja. Hún sat á sviðinu í nokkrar mínútur og gat svo byrjað aftur á atriði sínu frá byrjun. Seinni tilraunin gekk áfallalaust fyrir sig og hljómaði söngkonan ótrúlega vel. Henni er spáð mjög ofarlega í keppninni. Systur stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision á laugardaginn.EBU
Blaðamenn eru viðstaddir æfinguna og er skemmtileg stemning í höllinni. Tveimur lögum á eftir Íslandi er það Svíþjóð sem á sviðið. Söngkonan Cornelia Jakobs er fulltrúi Svíþjóðar í ár með lagið Hold Me Closer. Eitthvað tækniklúður var í upphafi æfingar Corneliu og þurfti hún að hætta mjög fljótt að syngja. Hún sat á sviðinu í nokkrar mínútur og gat svo byrjað aftur á atriði sínu frá byrjun. Seinni tilraunin gekk áfallalaust fyrir sig og hljómaði söngkonan ótrúlega vel. Henni er spáð mjög ofarlega í keppninni. Systur stíga á svið á úrslitakvöldi Eurovision á laugardaginn.EBU Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum. Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi.
Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum. Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi.
Eurovision Júrógarðurinn Tengdar fréttir Laura og Mika fjarverandi á fyrstu æfingunni fyrir lokakvöldið Fyrsta æfingin fyrir Eurovision keppnina á laugardag er nýhafin í Pala Alpitour höllinni í Tórínó á Ítalíu. Það vakti athygli blaðamanna í áhorfendastúkunni að aðeins einn kynnanna var á sviðinu. 13. maí 2022 11:37 Systur rísa en stjarna Úkraínu skín langskærast Framlag Íslands í Eurovision er í tuttugasta sæti meðal veðbanka yfir þær þjóðir sem líklegastar eru til að bera sigur úr býtum annað kvöld. Fátt getur komið í veg fyrir sigur Úkraínu, ef marka má veðbanka að minnsta kosti. 13. maí 2022 11:15 Fólkið sem syngur á bak við tjöldin í íslenska atriðinu Eurovisionborgin Tórínó á Ítalíu er að fyllast þessa dagana af íslenskum vinum, aðstandendum og aðdáendum Systra sem vilja freista þess að fylgjast með íslenska atriðinu á laugardag. 12. maí 2022 21:11 Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Fleiri fréttir Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn „Fer ekki á milli mála að ég er að syngja um stráka“ Fögnuðu íslenskri tónlist við fjöruga opnun Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu „Það má segja að þetta sé í raun sorg og uppgjör“ Kom öllum að óvörum með fleiri lögum í nótt Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Biðst afsökunar á brösuglegum Coachella-flutningi „Eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur“ „Ég hef aldrei fylgt reglunum“ Uppselt í þriðja sinn á augabragði Íslandsvinurinn Yung Lean setur stefnuna á risatónleika í Hörpu Inga Sæland með sumarsmell í vasanum Fullur tilhlökkunar fyrir nýjum kafla Nick Cave til Íslands Emelíana Lillý úr FNV vann Söngkeppni framhaldsskólanna Tók símtalið á pabba fyrir Herbert Sjá meira
Laura og Mika fjarverandi á fyrstu æfingunni fyrir lokakvöldið Fyrsta æfingin fyrir Eurovision keppnina á laugardag er nýhafin í Pala Alpitour höllinni í Tórínó á Ítalíu. Það vakti athygli blaðamanna í áhorfendastúkunni að aðeins einn kynnanna var á sviðinu. 13. maí 2022 11:37
Systur rísa en stjarna Úkraínu skín langskærast Framlag Íslands í Eurovision er í tuttugasta sæti meðal veðbanka yfir þær þjóðir sem líklegastar eru til að bera sigur úr býtum annað kvöld. Fátt getur komið í veg fyrir sigur Úkraínu, ef marka má veðbanka að minnsta kosti. 13. maí 2022 11:15
Fólkið sem syngur á bak við tjöldin í íslenska atriðinu Eurovisionborgin Tórínó á Ítalíu er að fyllast þessa dagana af íslenskum vinum, aðstandendum og aðdáendum Systra sem vilja freista þess að fylgjast með íslenska atriðinu á laugardag. 12. maí 2022 21:11