Útgjöld til rannsókna og þróunar enn lítil

Samkvæmt tölum Hagstofu hafa útgjöld til rannsókna og þróunar aukist töluvert á síðustu sjö árum sem hlutfall af landsframleiðslu. Hins vegar teljast þau lítil ef litið er lengur aftur í tímann og ef útgjöldin eru borin saman við hin Norðurlöndin.

nýsköpun
Auglýsing

Heild­ar­út­gjöld til rann­sókna og þró­unar námu 2,5 pró­sentum af lands­fram­leiðslu í fyrra og er það hæsta hlut­fall sem mælst hefur hér­lendis frá árinu 2010. Ef tekið er til­lit til lands­fram­leiðslu er þetta þú nokkuð undir með­al­út­gjöldum hinna Norð­ur­landa og minna en útgjöldin hér­lendis á árunum 2000-2007.

Mun minni stuðn­ingur eftir hrun

Hag­stofan greindi frá því í gær að hlut­fall útgjalda til rann­sókna- og þró­un­ar­starfs af lands­fram­leiðslu hér­lendis í fyrra hafi verið það hæsta sem mælst hafi frá því að Hag­stofa Íslands tók við umsjón töl­fræð­innar árið 2014. Þau námu alls 70,8 millj­örðum króna árið 2020, sem er rúm­lega tvö­falt meira en heild­ar­upp­hæð útgjald­anna árið 2013.

Auglýsing

Í gagna­banka Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) má hins vegar finna tölur um þessi útgjöld alveg aftur til árs­ins 2000. Sam­kvæmt þeim námu útgjöldin að með­al­tali um 2,7 pró­sentum af lands­fram­leiðslu á árunum 2000-2007 og var það sam­bæri­legt hlut­fall og á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Sam­an­burð­inn má sjá á mynd hér að neð­an.

Mynd: Kjarninn. Heimild: OECD og Hagstofa

Í kjöl­far efna­hags­hruns­ins lækk­aði þó fram­lagið hér­lendis tölu­vert, úr 2,5 pró­sentum af lands­fram­leiðslu árið 2007 niður í 1,7 pró­sent árið 2013. Á sama tíma voru útgjöldin á hinum Norð­ur­lönd­unum nokkuð stöðug, en þar hafa þau að með­al­tali verið 2,8 pró­sent af lands­fram­leiðslu á síð­ustu 13 árum.

Útgjöldin í mála­flokknum hér­lendis í fyrra eru því bæði undir með­al­tali hinna Norð­ur­land­anna og undir með­al­út­gjöldum hér­lendis á árunum fyrir hrun, ef þau eru mæld sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu.

Haldið uppi af fyr­ir­tækjum

Sam­kvæmt tölum Hag­stofu standa fyr­ir­tæki að baki 80 pró­sent af útgjalda­aukn­ing­unni frá árinu 2013, en þau hafa aukið árleg útgjöldin sín í mála­flokknum um 30 millj­arða króna. Á sama tíma hafa árleg útgjöld háskóla­stofn­ana auk­ist um 8 millj­arða króna, en aukn­ingin hefur ein­ungis numið 179 millj­ónum króna hjá öðrum opin­berum stofn­un­um.

Ef tekið er til­lit til hag­vaxtar hefur fram­lag háskóla og ann­arra opin­berra stofn­ana til nýsköp­unar nokkurn veg­inn staðið í stað á síð­ustu árum, en sam­an­lagt hafa þau verið á bil­inu 0,7 til 0,8 pró­sent af lands­fram­leiðslu. Á sama tíma hafa fyr­ir­tæki næstum því tvö­faldað sitt hlut­fall, úr 0,9 pró­sentum upp í 1,7 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent