Hugmyndirnar sem keppa í úrslitum Gulleggsins í ár Máni Snær Þorláksson skrifar 2. febrúar 2023 16:28 Guðjón Már Guðjónsson í Oz á Masterclass Gulleggsins í ár Gulleggið Tíu teymi hafa verið valin til að taka þátt í lokakeppninni um Gulleggið 2023. Keppnin fer fram þann 10. febrúar næstkomandi í Grósku og verður sýnt frá henni í beinni útsendingu hér á Vísi. Alls barst 101 hugmynd frá upprennandi frumkvöðlum í keppnina. 70 reyndir aðilar úr atvinnulífinu og nýsköpunarsenunni fóru yfir hugmyndirnar í rýnihóp og völdu þær tíu bestu til að taka þátt í lokakeppni Gulleggsins. Um er að ræða stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Ísland en fjölmörg sprotafyrirtæki hafa stigið sín fyrstu skref í keppninni. Má þar til dæmis nefna Controlant, Meniga og SolidClouds. „Ég óska teymum til hamingju að hafa komist áfram í keppninni um Gulleggið,“ er haft eftir Ástu Maríu Þórhallsdóttur, verkefnastjóra Gulleggsins, í tilkynningu frá keppninni. Hún segir það vera spennandi að sjá hvað hópurinn er fjölbreyttur í ár og að ólíkar hugmyndir séu á bakvið hvert teymi. „Það er alltaf erfitt að segja nei og í ár var það einstaklega sárt því hugmyndirnar og frumkvöðlarnir voru virkilega flottir og hvetjum við fólk til að halda áfram þrátt fyrir að hafa ekki komist áfram að þessu sinni“ Þessi tíu teymi sem taka þátt í lokakeppninni munu fara í gegnum stífa þjálfun í vinnustofum áður en þau stíga á svið í Grósku. Á vinnustofunni verður lögð áhersla á hvernig þau fara að því að hefja rekstur og hvaða þættir það eru sem þarf að horfa til þegar koma á hugmynd í framkvæmd á árangursríkan hátt. Hér fyrir neðan má sjá teymin sem taka þátt í lokakeppninni og hugmyndir þeirra:
Alls barst 101 hugmynd frá upprennandi frumkvöðlum í keppnina. 70 reyndir aðilar úr atvinnulífinu og nýsköpunarsenunni fóru yfir hugmyndirnar í rýnihóp og völdu þær tíu bestu til að taka þátt í lokakeppni Gulleggsins. Um er að ræða stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Ísland en fjölmörg sprotafyrirtæki hafa stigið sín fyrstu skref í keppninni. Má þar til dæmis nefna Controlant, Meniga og SolidClouds. „Ég óska teymum til hamingju að hafa komist áfram í keppninni um Gulleggið,“ er haft eftir Ástu Maríu Þórhallsdóttur, verkefnastjóra Gulleggsins, í tilkynningu frá keppninni. Hún segir það vera spennandi að sjá hvað hópurinn er fjölbreyttur í ár og að ólíkar hugmyndir séu á bakvið hvert teymi. „Það er alltaf erfitt að segja nei og í ár var það einstaklega sárt því hugmyndirnar og frumkvöðlarnir voru virkilega flottir og hvetjum við fólk til að halda áfram þrátt fyrir að hafa ekki komist áfram að þessu sinni“ Þessi tíu teymi sem taka þátt í lokakeppninni munu fara í gegnum stífa þjálfun í vinnustofum áður en þau stíga á svið í Grósku. Á vinnustofunni verður lögð áhersla á hvernig þau fara að því að hefja rekstur og hvaða þættir það eru sem þarf að horfa til þegar koma á hugmynd í framkvæmd á árangursríkan hátt. Hér fyrir neðan má sjá teymin sem taka þátt í lokakeppninni og hugmyndir þeirra: Aurora Interactive Dion Duff, Friðrik Snær Tómasson, Halldór Stefánsson „Framleiðsla á þriðju persónu action adventure tölvuleik.“ Bambaló barnapössun Aníta Ísey, Rebekka Levin „Bambaló Barnapössun (snjallforrit). Fyrir íslenskar fjölskyldur sem vantar barnapössun fyrir eina kvöldstund af og til án þess að fá samviskubit.“ Better sex Sigga Dögg, Sævar Eyjólfsson „Rafræn fullorðins kynfræðsla á ensku í streymisveitu“ Ezze Þóra Ólafsdóttir, Donna Cruz „App til að kaupa, selja, gefa eða vera með uppboð á eigin eignum í. Jafn notendavænt og reikniritað eins og að nota til dæmis Instagram.“ PellisCol Íris Björk Marteinsdóttir, Ívar Örn Marteinsson „PellisCol ætlar að vera fyrst á Íslandi til þess að þróa Spa húðvörur með íslensku kollageni, kollageni sem er unnið úr þorskroði.“ Sápulestin Alda Leifsdóttir, Elísabet Halldórsdóttir „Breytum sorpi í gull. Endurvinnum notaða steikingarolíu í vistvæna lúxussápu. Sápulestin fer hringin í kringum landið, sækir notaða olíu á veitingastaði og sérhannar sápur fyrir sveitir og landshluta.“ Snux Harpa Hjartardóttir „Sílíkonpúði ætlaður sem stuðningur við að hætta að taka nikótínpoka í vörina. Nikótínpúðar eyða tannholdi og eru mjög ávanabinandi.“ SoFo Software Fjölnir Þrastarson, Þórarinn Sigurvin Gunnarsson, Friðrik Örn Gunnarsson „SoFo er samfélagsmiðill fyrir fjárfesta. Með SoFo getur fólk deilt meðmælum, fylgt eignum og fólki, og risið á toppinn.“ Soultech Davíð Haraldsson, Stefán Ólafsson, Pétur Örn Jónsson, Bryndís Jóhannsdóttir, Hrefna Líf Ólafsdóttir „Smáforrit þar sem allir geta farið í gegnum sálfræðimeðferðir. Hugbúnaður sem aðstoðar sálfræðinga við að veita meðferðir.“ Stitch hero Þórey Rúnarsdóttir, Marta Schluneger „Knitting pattern design software, knitting machines, and knitwear production.“
Aurora Interactive Dion Duff, Friðrik Snær Tómasson, Halldór Stefánsson „Framleiðsla á þriðju persónu action adventure tölvuleik.“ Bambaló barnapössun Aníta Ísey, Rebekka Levin „Bambaló Barnapössun (snjallforrit). Fyrir íslenskar fjölskyldur sem vantar barnapössun fyrir eina kvöldstund af og til án þess að fá samviskubit.“ Better sex Sigga Dögg, Sævar Eyjólfsson „Rafræn fullorðins kynfræðsla á ensku í streymisveitu“ Ezze Þóra Ólafsdóttir, Donna Cruz „App til að kaupa, selja, gefa eða vera með uppboð á eigin eignum í. Jafn notendavænt og reikniritað eins og að nota til dæmis Instagram.“ PellisCol Íris Björk Marteinsdóttir, Ívar Örn Marteinsson „PellisCol ætlar að vera fyrst á Íslandi til þess að þróa Spa húðvörur með íslensku kollageni, kollageni sem er unnið úr þorskroði.“ Sápulestin Alda Leifsdóttir, Elísabet Halldórsdóttir „Breytum sorpi í gull. Endurvinnum notaða steikingarolíu í vistvæna lúxussápu. Sápulestin fer hringin í kringum landið, sækir notaða olíu á veitingastaði og sérhannar sápur fyrir sveitir og landshluta.“ Snux Harpa Hjartardóttir „Sílíkonpúði ætlaður sem stuðningur við að hætta að taka nikótínpoka í vörina. Nikótínpúðar eyða tannholdi og eru mjög ávanabinandi.“ SoFo Software Fjölnir Þrastarson, Þórarinn Sigurvin Gunnarsson, Friðrik Örn Gunnarsson „SoFo er samfélagsmiðill fyrir fjárfesta. Með SoFo getur fólk deilt meðmælum, fylgt eignum og fólki, og risið á toppinn.“ Soultech Davíð Haraldsson, Stefán Ólafsson, Pétur Örn Jónsson, Bryndís Jóhannsdóttir, Hrefna Líf Ólafsdóttir „Smáforrit þar sem allir geta farið í gegnum sálfræðimeðferðir. Hugbúnaður sem aðstoðar sálfræðinga við að veita meðferðir.“ Stitch hero Þórey Rúnarsdóttir, Marta Schluneger „Knitting pattern design software, knitting machines, and knitwear production.“
Nýsköpun Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Viðskipti innlent Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Viðskipti innlent Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Sjá meira