Söguleg frammistaða Giannis sem var valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. júlí 2021 08:00 Giannis Antetokounmpo var hreint út sagt stórkostlegur í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar. Jonathan Daniel/Getty Images Giannis Antetokounmpo skoraði 50 stig er Milwaukee Bucks tryggði sér meistaratitilinn í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Giannis var valinn verðmætasti leikmaður einvígisins að leik loknum. Frammistöður hans í einvígi Bucks og Phoenix Suns hafa verið með þeim bestu í sögunni. Tölfræðin talar sínu máli. Eftir að hafa lent 0-2 undir í úrslitaeinvíginu þá fullkomnu Bucks endurkomuna í nótt og unnu seríuna 4-2. Félagið er því orðið meistari í aðeins annað sinn í sögu þess en 50 ár eru frá síðasta meistaratitli. Hinn 26 ára gamli Giannis lagði grunninn að sigrinum í nótt sem og einvíginu með frábærum frammistöðum. Engin þó betri en í nótt þar sem hann skoraði 50 stig, tók 14 fráköst og hindraði fimm skot. Þá skoraði hann úr 17 af 19 vítaskotum sínum. Gríska undrið skoraði að meðaltali 35,2 stig í einvíginu gegn Suns ásamt því að taka 13,2 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Hann er aðeins annar leikmaður í sögu deildarinnar til að skora yfir 35 stig að meðaltali í úrslitum ásamt því að taka yfir 10 fráköst og gefa yfir 5 stoðsendingar. Hinn leikmaðurinn er LeBron James en hann náði því með Cleveland Cavaliers árið 2015. Giannis Antetokounmpo averaged 35.2 PPG, 13.2 RPG and 5.0 APG in the Finals.He is the second player in NBA history to average 35+ points, 10+ rebounds and 5+ assists in a Finals series, joining LeBron James (35.8 PPG, 13.3 RPG, 8.8 APG) in 2015. pic.twitter.com/dCwzAQt4yW— NBA.com/Stats (@nbastats) July 21, 2021 Ef það var ekki nóg þá eru Giannis og Shaquille O’Neal einu tveir leikmennirnir sem hafa skorað yfir 40 stig og tekið 10 fráköst eða meira í þremur leikjum í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar. Shaq náði því með Los Angeles Lakers árið 2000. Giannis Antetokounmpo is the 2nd player in NBA history to record 3 games of 40+ points and 10+ rebounds in the an NBA Finals series, joining Shaquille O Neal in 2000. pic.twitter.com/qafWVbCBu0— NBA History (@NBAHistory) July 21, 2021 Það sem gerir þessa tölfræði enn magnaðri er að fyrir einvígið var alls óvíst hvort Giannis gæti tekið þátt í því þar sem hann var tæpur eftir að meiðast á hné gegn Atlanta Hawks í úrslitum Austurdeildarinnar. Leikurinn í nótt var hinn fullkomni endir á svo gott sem fullkomnu tímabili fyrir Giannis sem varð einnig aðeins þriðji leikmaður í sögu deildarinnar til að valinn verðmætasti leikmaður deildarkeppninnar, verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins og varnarmaður ársins. Giannis Antetokounmpo joins Michael Jordan and Hakeem Olajuwon as the only players NBA history to win a regular season MVP Award, a Finals MVP Award and a Defensive Player of the Year Award. pic.twitter.com/Ks1Uhf9EA8— NBA History (@NBAHistory) July 21, 2021 Michael Jordan og Hakeem Olajuwon náðu einnig þeim áfanga á ferli sínum. Hér að neðan má svo sjá ótrúlega frammistöðu Giannis í síðari hálfleik leiksins í nótt þar sem hann var einfaldlega óstöðvandi. Það skipti engu máli þó Suns hefðu verið yfir í hálfleik, hann skoraði 33 af 50 stigum sínum í síðari hálfleik og tryggði Bucks fyrsta titilinn í hálfa öld. Gríska undrið kom, sá og sigraði. Giannis EXPLODES for 33 of his 50 points in the 2nd half of Game 6, fueling the @Bucks Taco Bell Comeback en route to their first NBA Championship in 50 years!50 PTS14 REB5 BLK17-19 FTM pic.twitter.com/qDbk0nHWeb— NBA (@NBA) July 21, 2021 NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Körfubolti NBA Mest lesið „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Fleiri fréttir LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Sjá meira
Frammistöður hans í einvígi Bucks og Phoenix Suns hafa verið með þeim bestu í sögunni. Tölfræðin talar sínu máli. Eftir að hafa lent 0-2 undir í úrslitaeinvíginu þá fullkomnu Bucks endurkomuna í nótt og unnu seríuna 4-2. Félagið er því orðið meistari í aðeins annað sinn í sögu þess en 50 ár eru frá síðasta meistaratitli. Hinn 26 ára gamli Giannis lagði grunninn að sigrinum í nótt sem og einvíginu með frábærum frammistöðum. Engin þó betri en í nótt þar sem hann skoraði 50 stig, tók 14 fráköst og hindraði fimm skot. Þá skoraði hann úr 17 af 19 vítaskotum sínum. Gríska undrið skoraði að meðaltali 35,2 stig í einvíginu gegn Suns ásamt því að taka 13,2 fráköst og gefa 5 stoðsendingar. Hann er aðeins annar leikmaður í sögu deildarinnar til að skora yfir 35 stig að meðaltali í úrslitum ásamt því að taka yfir 10 fráköst og gefa yfir 5 stoðsendingar. Hinn leikmaðurinn er LeBron James en hann náði því með Cleveland Cavaliers árið 2015. Giannis Antetokounmpo averaged 35.2 PPG, 13.2 RPG and 5.0 APG in the Finals.He is the second player in NBA history to average 35+ points, 10+ rebounds and 5+ assists in a Finals series, joining LeBron James (35.8 PPG, 13.3 RPG, 8.8 APG) in 2015. pic.twitter.com/dCwzAQt4yW— NBA.com/Stats (@nbastats) July 21, 2021 Ef það var ekki nóg þá eru Giannis og Shaquille O’Neal einu tveir leikmennirnir sem hafa skorað yfir 40 stig og tekið 10 fráköst eða meira í þremur leikjum í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar. Shaq náði því með Los Angeles Lakers árið 2000. Giannis Antetokounmpo is the 2nd player in NBA history to record 3 games of 40+ points and 10+ rebounds in the an NBA Finals series, joining Shaquille O Neal in 2000. pic.twitter.com/qafWVbCBu0— NBA History (@NBAHistory) July 21, 2021 Það sem gerir þessa tölfræði enn magnaðri er að fyrir einvígið var alls óvíst hvort Giannis gæti tekið þátt í því þar sem hann var tæpur eftir að meiðast á hné gegn Atlanta Hawks í úrslitum Austurdeildarinnar. Leikurinn í nótt var hinn fullkomni endir á svo gott sem fullkomnu tímabili fyrir Giannis sem varð einnig aðeins þriðji leikmaður í sögu deildarinnar til að valinn verðmætasti leikmaður deildarkeppninnar, verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins og varnarmaður ársins. Giannis Antetokounmpo joins Michael Jordan and Hakeem Olajuwon as the only players NBA history to win a regular season MVP Award, a Finals MVP Award and a Defensive Player of the Year Award. pic.twitter.com/Ks1Uhf9EA8— NBA History (@NBAHistory) July 21, 2021 Michael Jordan og Hakeem Olajuwon náðu einnig þeim áfanga á ferli sínum. Hér að neðan má svo sjá ótrúlega frammistöðu Giannis í síðari hálfleik leiksins í nótt þar sem hann var einfaldlega óstöðvandi. Það skipti engu máli þó Suns hefðu verið yfir í hálfleik, hann skoraði 33 af 50 stigum sínum í síðari hálfleik og tryggði Bucks fyrsta titilinn í hálfa öld. Gríska undrið kom, sá og sigraði. Giannis EXPLODES for 33 of his 50 points in the 2nd half of Game 6, fueling the @Bucks Taco Bell Comeback en route to their first NBA Championship in 50 years!50 PTS14 REB5 BLK17-19 FTM pic.twitter.com/qDbk0nHWeb— NBA (@NBA) July 21, 2021 NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Körfubolti NBA Mest lesið „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Körfubolti Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Fleiri fréttir LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu