Tímabilið undir hjá Skyttunum í Prag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2021 11:01 Nicolas Pépé (til hægri) skoraði mark Arsenal í fyrri leiknum gegn Slavia Prag. epa/NEIL HALL Staða ensku liðanna fyrir seinni leikina í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar er ansi ólík. Manchester United er komið með annan fótinn í undanúrslitin á meðan Arsenal þarf að taka á honum stóra sínum til að komast þangað. United vann fyrri leikinn gegn Granada á Spáni með tveimur mörkum gegn engu á meðan Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Slavia Prag á heimavelli. Nicolas Pépé kom Skyttunum yfir á 86. mínútu en þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Tomás Holes fyrir Tékkana. Arsenal er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 45 stig, tíu stigum frá 4. sætinu, þegar sjö leikir eru eftir. Möguleiki Arsenal á að komast í Meistaradeild Evrópu felst því í að vinna Evrópudeildina. Það yrði jafnframt fyrsti Evróputitill félagsins. Fyrsta Evrópulausa tímabilið í aldarfjórðung? Ef Arsenal fellur hins vegar úr leik í kvöld verður liðið að öllum líkindum ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili, í fyrsta sinn frá tímabilinu 1995-96. Arsenal komst í úrslit Evrópudeildarinnar undir stjórn Unais Emery fyrir tveimur árum en tapaði þá fyrir Chelsea, 4-1, í Aserbaídsjan. Arsenal gæti einmitt mætt Villarreal, sem Emery stýrir, í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Villarreal vann fyrri leikinn gegn Dinamo í Zagreb, 0-1, og stendur því vel að vígi fyrir seinni leikinn í kvöld. Sterkir Tékkar Leið Arsenal í undanúrslitin verður ekki greið því Slavia Prag hefur ítrekað sýnt í hvað liðið er spunnið í Evrópudeildinni í vetur og þegar slegið út tvö sterk bresk lið í útsláttarkeppninni. Í 32-liða úrslitunum vann Slavia Prag Leicester City, 2-0 samanlagt. Í sextán liða úrslitunum slógu Tékkarnir svo Skotlandsmeistara Rangers út, 3-1 samanlagt. Seinni leikur liðanna á Ibrox, sem Slavia Prag vann með tveimur mörkum gegn engu, dró heldur betur dilk á eftir sér. Í gær var Ondrej Kúdela, varnarmaður Slavia Prag, dæmdur í tíu leikja bann fyrir að beita Glen Kamara, miðjumann Rangers, kynþáttaníði. Hann tekur fyrsta leikinn í banninu út gegn Arsenal í kvöld. Ekki er ljóst hvort Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, getur teflt fram þeim Pierre-Emerick Aubameyang og Martin Ødegaard í leiknum í kvöld. Sá fyrrnefndi hefur verið veikur og sá síðarnefndi glímir við ökklameiðsli. Bukayo Saka og Emile Smith Rowe eru hins vegar klárir í slaginn. Taplausir í þrjátíu heimaleikjum í röð Árangur Slavia Prag á heimavelli undanfarna mánuði hlýtur að blása leikmönnum liðsins von í brjóst. Slavia Prag hefur ekki tapað í þrjátíu heimaleikjum í röð, eða síðan í nóvember 2019. Varnarmenn Arsenal þurfa að hafa góðar gætur á Abdallah Sima í leiknum í kvöld. Þessi nítján ára senegalski framherji hefur skorað fimmtán mörk á tímabilinu, þar af fjögur í Evrópudeildinni. Með hagstæðum úrslitum í kvöld kemst Slavia Prag í fyrsta sinn í undanúrslit í Evrópukeppni síðan 1996. Þá komst liðið í undanúrslit UEFA-keppninnar en tapaði þar fyrir Bordeaux frá Frakklandi. Leikur Slavia Prag og Arsenal hefst klukkan 19:00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Evrópudeild UEFA Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Sjá meira
United vann fyrri leikinn gegn Granada á Spáni með tveimur mörkum gegn engu á meðan Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Slavia Prag á heimavelli. Nicolas Pépé kom Skyttunum yfir á 86. mínútu en þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Tomás Holes fyrir Tékkana. Arsenal er í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 45 stig, tíu stigum frá 4. sætinu, þegar sjö leikir eru eftir. Möguleiki Arsenal á að komast í Meistaradeild Evrópu felst því í að vinna Evrópudeildina. Það yrði jafnframt fyrsti Evróputitill félagsins. Fyrsta Evrópulausa tímabilið í aldarfjórðung? Ef Arsenal fellur hins vegar úr leik í kvöld verður liðið að öllum líkindum ekki í Evrópukeppni á næsta tímabili, í fyrsta sinn frá tímabilinu 1995-96. Arsenal komst í úrslit Evrópudeildarinnar undir stjórn Unais Emery fyrir tveimur árum en tapaði þá fyrir Chelsea, 4-1, í Aserbaídsjan. Arsenal gæti einmitt mætt Villarreal, sem Emery stýrir, í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Villarreal vann fyrri leikinn gegn Dinamo í Zagreb, 0-1, og stendur því vel að vígi fyrir seinni leikinn í kvöld. Sterkir Tékkar Leið Arsenal í undanúrslitin verður ekki greið því Slavia Prag hefur ítrekað sýnt í hvað liðið er spunnið í Evrópudeildinni í vetur og þegar slegið út tvö sterk bresk lið í útsláttarkeppninni. Í 32-liða úrslitunum vann Slavia Prag Leicester City, 2-0 samanlagt. Í sextán liða úrslitunum slógu Tékkarnir svo Skotlandsmeistara Rangers út, 3-1 samanlagt. Seinni leikur liðanna á Ibrox, sem Slavia Prag vann með tveimur mörkum gegn engu, dró heldur betur dilk á eftir sér. Í gær var Ondrej Kúdela, varnarmaður Slavia Prag, dæmdur í tíu leikja bann fyrir að beita Glen Kamara, miðjumann Rangers, kynþáttaníði. Hann tekur fyrsta leikinn í banninu út gegn Arsenal í kvöld. Ekki er ljóst hvort Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, getur teflt fram þeim Pierre-Emerick Aubameyang og Martin Ødegaard í leiknum í kvöld. Sá fyrrnefndi hefur verið veikur og sá síðarnefndi glímir við ökklameiðsli. Bukayo Saka og Emile Smith Rowe eru hins vegar klárir í slaginn. Taplausir í þrjátíu heimaleikjum í röð Árangur Slavia Prag á heimavelli undanfarna mánuði hlýtur að blása leikmönnum liðsins von í brjóst. Slavia Prag hefur ekki tapað í þrjátíu heimaleikjum í röð, eða síðan í nóvember 2019. Varnarmenn Arsenal þurfa að hafa góðar gætur á Abdallah Sima í leiknum í kvöld. Þessi nítján ára senegalski framherji hefur skorað fimmtán mörk á tímabilinu, þar af fjögur í Evrópudeildinni. Með hagstæðum úrslitum í kvöld kemst Slavia Prag í fyrsta sinn í undanúrslit í Evrópukeppni síðan 1996. Þá komst liðið í undanúrslit UEFA-keppninnar en tapaði þar fyrir Bordeaux frá Frakklandi. Leikur Slavia Prag og Arsenal hefst klukkan 19:00 í kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3. Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Evrópudeild UEFA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Evrópudeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Körfubolti Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Enski boltinn „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Enski boltinn „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ Körfubolti HSÍ lengir bann Einars: „Framganga þjálfarans var mjög ógnandi og ódrengileg“ Handbolti „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Körfubolti Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Körfubolti Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Fótbolti Fleiri fréttir Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich „Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar „Lítur ekki vel út með Elmar, ég er hræddur um að þetta sé svipað og hjá Eiði“ Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Kane skoraði en Bayern tapaði Newcastle fór illa með Jóa Berg og félaga á Turf Moor Uppgjörið: FH - Vestri 3-2 | FH kom til baka og vann fjórða leikinn í röð Eyjamenn byrja fótboltasumarið ekki vel Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Arsenal menn kláruðu sitt og nú er pressan á Man. City Ipswich Town aftur upp í ensku úrvalsdeildina eftir 22 ára fjarveru Þórir bæði með mark og stoðsendingu Andrea á batavegi: „Gott fyrir alla að sjá hana brosandi“ Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Arteta segir að Gabriel Jesus sé ekki á förum í sumar Með sjö í þremur: „Kannski margir sem afskrifa mann en mér finnst ég eiga nóg eftir“ Clattenburg hættur og segist hafa verið skotmark sérfræðinga Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar „Hún er með hjartagalla en í góðum höndum núna og vonandi fer allt vel“ „Ég er spennt að fara heim að sofa“ Luton mistókst að koma sér úr fallsæti „Við vissum að við þyrftum að þjást“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Breiðablik - FH 3-0 | Blikar héldu uppteknum hætti Uppgjörið: Stjarnan - Tindastóll 0-2 | Fyrstu mörkin og fyrsti sigurinn hjá Stólunum Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Sala drykkjarins í hæstu hæðum eftir myndirnar af Haaland Sjá meira