„Setjum þá kröfu á okkur sjálfar að taka þrjú stig“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 21. október 2021 22:30 Mynd/Skjáskot Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins í fótbolta, segir að búast megi við jöfnum og hörðum leik þegar Ísland tekur á móti Tékkum á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2023 á morgun. „
Ég held að staðan á hópnum sé bara nokkuð góð. Við höfum farið í marga svona stóra leiki áður þannig að við erum með góða góða blöndu af reynslumiklum og ungum leikmönnum sem eru kannski að fara í svona stærri leiki í fyrsta sinn,“ sagði Dagný. „En ég held að við séum bara mjög klárar. Við erum búnar að æfa vel í vikunni og það bara gengur vel.“ Eins og gefur að skilja er leikurinn á morgun mjög mikilvægur, og einhverjir eru jafnvel farnir að stilla þessu upp sem hálfgerðum úrslitaleik strax í upphafi undankeppninnar. Dagný segist þó ekki finna fyrir því. „Nei, ég viðurkenni að allavega ég persónulega finn ekki mikið fyrir því. Við samt setjum þá kröfu á okkur sjálfar að taka þrjú stig þannig að ég held að pressan komi kannski bara frá okkur sjálfum.“ En við hverju megum við búast í leiknum á morgun? „Bara jöfnum leik, og hörðum leik. Ég held að bæði lið verði svolítið föst fyrir. en vonandi verðum við meira með boltann og skorum fleiri mörk.“ Í tékkneska liðinu er liðsfélagi Dagnýjar hjá West Ham, Katerina Svitkova. Dagný segist hafa verið búin að vara hana við veðurfarinu á Íslandi, en þvertekur fyrir það að hafa málað upp of svarta mynd af aðstæðunum hér. „Hún lýgur því nú, ég sagði ekki að aðstæðurnar væru hræðilegar. Ég sagði henni að það væri orðið kalt og maður gæti búist við rigningu og roki og frosti og öllu.“ „Ég sagði henni líka að grasvellirnir á Íslandi væru ekkert sérstaklega góðir í október. Hún hefur kannski tekið mig of mikið á orðinu, en kannski er bara fínt að þær haldi að þett sé eitthvað hræðilegt. Við erum allavega vanar að spila í þessu en ég veit ekki með þær.“ Þrátt fyrir að hafa málað upp frekar slæma mynd af veðurfarinu á Íslandi segir Dagný að æfingar í vikunni hafi gengið vel og að liðið sé tilbúið í verkefnið sem framundan er. „Já, algjörlega. Við erum búnar að fá mjög fínt veður í vikunni. Í seinasta verkefni átti að vera miklu verra veður en það rættist úr því. Ég held að versta veðrið sem ég hef spilað í núna í ár hafi verið í júní. Þá var bara óveður á eitt markið.“ „En ég held að það sé spáð fínu veðri og smá rigningu. er það ekki bara svona klassískt og skemmtilegt fótboltaveður?“ sagði Dagný að lokum. Viðtalið við Dagnýju má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Fótbolti HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Handbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Fleiri fréttir Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Sjá meira