Andri Þór Björnsson úr GR náði sér ekki á strik á lokahring PGA Meistaramóts Landeryd Masters í Svíþjóð.
Hann kom í hús á 83 höggum eða 12 höggum yfir pari eftir að hafa verð 3 höggum undir pari fyrir lokahringinn. Hann lauk því leik á níu höggum yfir pari samtals og hafnaði í 53. sæti.
Svíinn Rasmus Holmberg sigraði mótið á 11 höggum undir pari. Úrslitin á mótinu má sjá hér.
Aron Snær Júlíusson úr GKG og Aron Bergsson úr Hills Golfklúbbnum í Svíþjóð komust ekki í gegnum niðurskurðinn.