„Um leið og ég lendi fæ ég símtal frá bræðrum mínum um að hann sé farinn“ Stefán Árni Pálsson skrifar 29. nóvember 2020 10:00 Sigmar Vilhjálmsson er gestur vikunnar í Einkalífinu. vísir/vilhelm Sigmar sló fyrst í gegn í þáttunum 70 mínútur á Popp Tíví um aldamótin og hefur síðan þá verið þjóðþekktur einstaklingur hér á landi. Í dag á hann nokkra veitingastaði og hefur gert það gott á því sviði. Sigmar Vilhjálmsson er gestur vikunnar í Einkalífinu.
Sigmar missti pabba sinn fyrir tæplega ári síðan en þá féll Vilhjálmur Einarsson frá þann 28. desember. Vilhjálmur var fyrstur Íslendinga til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956 og var 5 sinnum kjörinn íþróttamaður ársins. Hann fékk silfur á leikunum. „Aðdragandinn var í rauninni eitt ár því árið áður var hann fluttur með sjúkraflugi frá Egilsstöðum og var frekar illa haldinn þegar hann kemur til Reykjavíkur,“ segir Sigmar og heldur áfram. „Honum var eiginlega vart hugað líf þá. Síðan nær hann sér upp úr því og við höfðum alveg ár með honum sem var frábært. Þetta ár var samt klárlega árið sem maður var að búa sig undir að þetta væri lokaspretturinn.“ Um síðustu jól heimsótti Simmi föður sinn á sjúkrahúsið. „Það er í rauninni síðasta kvöldið þar sem hann talar, situr uppi og við náum að óska honum gleðilegra jóla og ná ágætis samtali við hann. Eftir það fer hann í dá. Ég var þarna að fara á öðrum í jólum með miðjusoninn minn á handboltamót í Svíþjóð og var svona eitthvað að efast um það hvort ég ætti að fara. Á ákvað að fara og það var síðan um leið og ég lendi fæ ég símtal frá bræðrum mínum um að hann sé farinn. Þá kom upp sú spurning hvort það ætti að reyna halda honum lifandi þangað til að ég kæmi til baka á gamlárs. Af því að ég fékk þennan tíma með honum á aðfangadag þá fannst mér það engan veginn við hæfi,“ segir Sigmar og bætir við að faðir hans hefði sjálfur aldrei viljað það, að vera haldið á lífi í vélum. Sigmar segir að það hafi verið erfitt að skipuleggja svona stóra jarðarför en álagið hafi dreifst vel á þá bræður, en þeir eru sex talsins. „Ég hef ekki enn haft tíma til að lesa minningargreinarnar. Morgunblaðið tók þær allar saman fyrir mig og ég á þær í bundinni bók sem ég ætla einhvern tímann að gefa mér tíma til að lesa. Ég hef svona að einhverju leyti ýtt því frá mér að fara yfir þá bók.“ Í þættinum hér að ofan ræðir Simmi Vill um upphafið á fjölmiðlaferli sínum, veitingabransann og það hvernig er að reka veitingastaði í miðju Covid, um fráfall föður hans seint á síðasta ári, þristamúsina frægu, framtíðina og svo margt fleira.
Einkalífið Mest lesið Clooney mælti með handtöku Netanyahu Lífið Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Lífið Keppendur Ungfrú Ísland 2024 Lífið Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Lífið Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Lífið Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Lífið Forðast drama eins og heitan eldinn Lífið Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós Lífið samstarf Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar Lífið Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Lífið Fleiri fréttir Keppendur Ungfrú Ísland 2024 Glæsihús Gerðar í Blush aftur á sölu Clooney mælti með handtöku Netanyahu Stjörnulífið: Löng helgi, hátíðarsýning og tónleikar Með átján husky hunda á heimilinu og mæla með Forsetaáskorunin: Höfuðborgin ætti að vera í góða veðrinu fyrir norðan eða austan Sungið og sungið á Sauðárkróki Elín Metta og Sigurður eiga von á barni Forðast drama eins og heitan eldinn Myndaveisla: Ekkert gefið eftir í forsetafögnuði ísdrottningarinnar „Þetta voru flottustu tónleikar sem haldnir hafa verið á Íslandi“ Krakkatían: Frambjóðendur, rapparar og ofurhetjur Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, sjóslys og mýflugnafaraldur Af vængjum fram: „Ég ætla ekkert að fara að gráta hérna“ Öll með aðstöðu til að fagna sigri með stuðningsmönnum Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Setja upp söngleiki, leikrit og tónleika í Háskólabíó í sumar Hönnunarhús Markúsar Mána og Kristínar til sölu Myndaveisla: Sællegar skvísur í sumarfíling Andri og Erla selja í Seljunum „Fengum ekki sjokk, en við fengum sjokk að hann væri með hjartagalla“ Hafa ekki sést saman í sjö vikur Elísabet og Áki nefndu stúlkuna Fantaflott með frönskum gluggum í Vesturbænum Heitustu trendin fyrir sumarið 2024 „Lítið rauðhært kríli væntanlegt í nóvember“ Segir sjálfsvígin sárust Elín Hall í rándýrum kjól á rauða dreglinum Bein útsending frá svartþrastahreiðri í Hvalfjarðarsveit Ásdís Rán býður forsetaefnum á rauða dregilinn Sjá meira