Gríðarleg fjölgun meðal útskrifaðra kennara hér á landi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. janúar 2023 15:20 Það er jafnvíst og að sólin kemur upp að börn þessa lands þurfa kennara. Þeim sem útskrifast úr háskólum hefur heldur betur fjölgað. Vísir/Vilhelm Á fimmta hundrað kennarar hafa útskrifast úr háskólum hér á landi undanfarin tvö ár. Það eru tæplega jafnmargir og árin fimm á undan. Menntamálaráðuneytið segir átaki stjórnvalda um fjölgun kennara að þakka.
Vakin er athygli á því á vef Stjórnarráðsins í dag að ráðuneytið hafi vorið 2019 sett af stað fimm ára átaksverkefni um nýliðun kennara. „Útskrifuðum kennurum hefur fjölgað umtalsvert frá því að átaksverkefnið hófst. Á síðasta ári útskrifuðust 454 kennarar frá þeim háskólum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi. Það er 160% aukning miðað við meðaltal áranna 2015–2019.“ Markmið átaksverkefnisins var að fjölga kennurum á öllum skólastigum og auka gæði náms og kennslu í íslensku skólakerfi með farsæld nemenda að leiðarljósi. Eins og sjá má hefur fjölgunin orðið umtalsverð undanfarin ár. „Frá því að átaksverkefnið hófst fyrir rúmum þremur árum hefur rík áhersla verið lögð á að fjölga þeim sem velja kennaranám og auka skilvirkni námsins svo kennaranemar útskrifist á tilsettum tíma. Á þeim tíma hefur aðsókn í kennaranám farið fram úr björtustu vonum og brautskráningum fjölgað samhliða.“ Lögð hafi verið áhersla á að kennaranemar fái faglega þekkingu og reynslu af skólastarfi meðan á námi stendur með 50% launuðu starfsnámi á lokaári námsins. „Þannig njóta þeir faglegrar leiðsagnar frá reyndum kennurum á vettvangi. Samhliða þessari áherslu hafa reynslumiklir kennarar verið hvattir til að afla sér sérhæfingar í starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf.“ Kennaranemum stendur til boða að sækja um hvatningarstyrk úr sérstökum Nýliðunarsjóði sem nemur allt að 800.000kr. að uppfylltum tilteknum skilyrðum. „Með þessum hætti leggja stjórnvöld áherslu á að nemendur helgi sig náminu, ljúki því á tilsettum tíma og hefji störf við kennslu að því loknu. Enn fremur hefur starfandi kennurum sem sérhæfa sig í starfstengdri leiðsögn gefist kostur á að sækja um hvatningarstyrk sem nemur allt að 150.000kr. vegna viðbótarnáms með áherslu á starfstengda leiðsögn og kennsluráðgjöf.“
Skóla - og menntamál Háskólar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Fleiri fréttir Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Sjá meira