Gosið tvöfalt öflugra en hefur verið lengst af Atli Ísleifsson skrifar 11. maí 2021 11:48 Aukið flæði hefur haldist í hendur við hækkandi kvikustróka og öfluga framrás hraunsins í Meradölum. Vísir/Vilhelm Veruleg aukning hefur orðið í hraunrennsli í Fagradalsfjalli síðustu vikuna. Meðalrennslið yfir tímabilið mælist þrettán rúmmetrar á sekúndu sem er miklu meira en þeir tæplega átta rúmmetrar á sekúndu sem áður hafa mælst.
Frá þessu segir í tilkynningu á vef Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Nýjustu niðurstöðurnar eru sögð nokkur tíðindi þar sem veruleg aukning hafi orðið í hraunrennsli í Fagradalsfjalli síðustu vikuna. „Aukið flæði hefur haldist í hendur við hækkandi kvikustróka og öfluga framrás hraunsins í Meradölum. Gosið er nú tvöfalt öflugra en það hefur verið lengst af. Merki um aukningu hafa þó verið undanfarnar tvær vikur en mælingin nú tekur af öll tvímæli. Rúmmál hraunsins er nú orðið rúmlega 30 millj. rúmmetrar og flatarmál þess tæplega 1,8 ferkílómetrar,“ segir í tilkynningunni. Jarðvísindastofnun segir að af þeim rúmlega fimmtíu dögum sem liðnir séu frá upphafi gossins megi gróflega skipta í þrennt. Fyrsta tímabilið stóð í um tvær vikur og einkenndist af fremur stöðugu en þó örlítið minnkandi hraunrennsli. Rennslið lækkaði úr 7-8 m3/s í 4-5 m3/s á tveimur vikum. Annað tímabilið, sem einnig stóð í tvær vikur, einkenndist af opnun nýrra gosopa norðan við upphaflegu gígana. Hraunrennsli var nokkuð breytilegt, á bilinu 5-8 m3/s. Þriðja tímabilið, síðustu þrjár vikur, hef einn gígur verið ráðandi og kemur nær allt hraunið úr honum. Hraunrennsli hefur heldur vaxið á þessum tíma. Aukningin hefur verið mikil síðustu vikuna og nú er gosið mun stærra en verið hefur hingað til. Enn er þó ákafi gossins fremur lítill miðað við önnur gos. Nýi stígurinn liggur í þægilegum gönguhalla upp brekkuna. Áður fengu margir byltu við að klöngrast niður skriðuna vinstra megin.KMU Frábrugðið fyrri gosum Ennfremur segir að gosið í Fagradalsfjalli sé um margt frábrugðið þeim gosum sem Íslendingar hafi orðið vitni að undanfarna áratugi. „Flest gosin hafa átt upptök í kvikuhólfum undir megineldstöðvum þar sem þrýstingur í hólfinu og stærð þess virðist ráða mestu um stærð og lengd goss. Í Fagradalsfjalli virðist þessu vera nokkuð öðruvísi varið. Þar er svo að sjá að aðstreymisæðin og eiginleikar hennar ráði miklu um kvikuflæðið. Rásin sem opnaðist var tiltölulega þröng og löng (nær niður á ~17 km dýpi) og flutningsgetan takmörkuð. Aukning með tíma bendir til þess að rásin fari víkkandi, sennilega vegna rofs í veggjum hennar. Ekki er að sjá að þrýstingur í upptökum hafi minnkað að ráði og því vex flæðið með tímanum þar sem rásin stækkar. Engin leið er á þessari stundu til að segja til um hve lengi gosið muni vara eða hvort hraunrennslið muni halda áfram að aukast,“ segir í tilkynningunni frá Jarðvísindastofnun.
Eldgos í Fagradalsfjalli Eldgos og jarðhræringar Tengdar fréttir Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. 10. maí 2021 21:32 Elsti gígurinn mættur aftur til leiks Kvika er aftur farin að leita á yfirborð jarðar upp úr fyrsta gígnum sem myndaðist í gosinu í Fagradalsfjalli. Það er nokkur breyting enda hefur sá gígur verið mjög lítið virkur frá því að virknin færðist yfir í annan gíg skömmu eftir að gosið hófst. 8. maí 2021 14:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Sjá meira
Brennheitt gjallið kveikir gróðurelda fjarri gígnum Glóandi gjall, sem þeytist hátt til himins úr eldgígnum á Fagradalsfjalli, hefur náð að kveikja gróðurelda í yfir eins kílómetra fjarlægð og var gossvæðið af þeim sökum lokað í dag. Kapp er nú lagt á bæta göngustíginn vegna tíðra slysa, með tveimur til þremur ökklabrotum á dag. 10. maí 2021 21:32
Elsti gígurinn mættur aftur til leiks Kvika er aftur farin að leita á yfirborð jarðar upp úr fyrsta gígnum sem myndaðist í gosinu í Fagradalsfjalli. Það er nokkur breyting enda hefur sá gígur verið mjög lítið virkur frá því að virknin færðist yfir í annan gíg skömmu eftir að gosið hófst. 8. maí 2021 14:09