Hápunktur ársins að smala með íslenskum bændum Kristján Már Unnarsson skrifar 23. september 2020 21:30 Åsa Keim og Joakim Keim koma frá Gautaborg í Svíþjóð. Stöð 2/Einar Árnason.
Ráðskonurnar í fjárleitunum á Landmannaafrétti eru ákveðnar í því að reglum um sóttvarnir og aðskilnað smalamanna sé fylgt. Erlendir ferðamenn gengust undir sóttkví og tvöfalda skimun til að fá að taka þátt í leitunum, sem þeir segja hápunkt ársins. Þetta mátti sjá í fréttum Stöðvar 2. Smalamenn á Landmannaafrétti þurfa í ár að fórna þeirri aldagömlu hefð að gista fyrstu nætur í Landmannalaugum. Þess í stað dvelja þeir alla sex dagana í skálum við Landmannahelli þar sem betri aðskilnaður fæst á milli hópa. Smalamenn safna fénu saman í girðingu við fjallið Sátu hjá Landmannahelli á leiðinni til byggða.Stöð 2/Einar Árnason. Passað er upp á sóttvarnir og að óviðkomandi komi ekki of nærri. Okkur leyfðist þannig ekki að fara inn í skálann þar sem ráðskonurnar voru að útbúa nestispakka fyrir gangnafólk. Þess í stað féllust þær á að við ræddum við þær í gegnum opinn glugga. Aðalráðskonan Þórhalla Guðrún Gísladóttir, Þjóðólfshaga, sagði okkur að nestið hefði yfirleitt verið sett í stór box; brauð í einu boxi, kleinur í öðru og svo framvegis. „Og allir hafa grubblað oní boxunum." Aðalráðskonan Þórhalla Guðrún Gísladóttir, Þjóðólfshaga, til hægri. Fyrir aftan eru frá vinstri: Árbjörg Sunna Markúsdóttir, Húsagarði, Ólafía Sveinsdóttir, Húsagarði, Sveinn Bjarki Markússon, Húsagarði, Dýrfinna Björk Ólafsdóttir, Húsagarði, og Hilda Pálmadóttir frá Læk í Holtum.Stöð 2/Einar Árnason. „En nú pökkum við öllu nesti þannig að hver og einn á bara einn nestispakka. Svo er það þessi endalausa sprittun, sem fer misjafnlega í menn. En þeir hlýða okkur nú samt, flestir mennirnir.“ -Þannig að þið eruð verðirnir, covid-verðirnir? „Ja, þeir segja það, sko,“ svarar ráðskonan Þórhalla og hlær. Fimm erlendir ferðamenn taka þátt í leitunum að þessu sinni, nokkru færri en undanfarin ár, en þeir eiga áhuga á íslenska hestinum sameiginlegan. Ingvar Guðbjörnsson, hobbíbóndi á Heiðarbrún, er leiðsögumaður erlendu ferðamannanna.Stöð 2/Einar Árnason. „Þetta fólk leggur nú töluvert á sig til að koma hingað. Það þarf að fara í sóttkví og tvöfalda skimun,“ segir Ingvar Guðbjörnsson, sem er leiðsögumaður ferðamannanna. „Þannig að þetta er svona ástríða hjá þeim. Og við höfum gagn af þeim. Annars værum við ekki með þau með okkur,“ segir Ingvar. Svisslendingurinn Karl Grau kom til landsins í júníbyrjun til að geta örugglega verið með. Hann sagðist vilja njóta íslenska hestsins við verkefni í náttúrunni en einnig félagsskapar við bændur. „Þetta er í sjötta sinn sem ég fer í fjárleitirnar.“ -Á þessu svæði? „Já,“ svarar Karl sem orðinn er 85 ára gamall. Karl Grau frá Sviss er orðinn 85 ára. Hann kom til Íslands í byrjun júní til að geta örugglega verið með í leitunum í sjötta sinn.Stöð 2/Einar Árnason. Sænsku hjónin Åsa og Joakim Keim frá Gautaborg voru að koma í þriðja sinn í leitir. Þau hrósuðu sérstaklega gestrisni Íslendinganna. „Ohh. Þetta er svo skemmtilegt. Við hlökkum til allt árið,“ segir Åsa. „Þetta er hápunkturinn á árinu að koma hingað,“ segir Joakim. Safnið, sem telur um fjögurþúsund fjár, var í dag rekið að Áfangagili norðan Heklu, þar sem réttað verður á morgun. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Landbúnaður Ferðamennska á Íslandi Hestar Rangárþing ytra Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Réttir Tengdar fréttir Smalakonur í hríðarbyl segja skítkalt en ógeðslega gaman Tugir karla og kvenna eru þessa dagana lengst inni á hálendi við fjárleitir í hríðarbyljum á Landmannaafrétti. Jöfn kynjahlutföll eru í hópi smalamanna þetta haustið en þetta er fertugasta árið sem Kristinn Guðnason í Skarði er fjallkóngur. 22. september 2020 21:56 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Sjá meira
Smalakonur í hríðarbyl segja skítkalt en ógeðslega gaman Tugir karla og kvenna eru þessa dagana lengst inni á hálendi við fjárleitir í hríðarbyljum á Landmannaafrétti. Jöfn kynjahlutföll eru í hópi smalamanna þetta haustið en þetta er fertugasta árið sem Kristinn Guðnason í Skarði er fjallkóngur. 22. september 2020 21:56