Innlent

Ný úrræðaleitarvél á eittlif.is

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ungmenni og aðstandendur þeirra geta nú leitað upplýsinga og úrræða í leitarvél á vefnum eittlif.is.
Ungmenni og aðstandendur þeirra geta nú leitað upplýsinga og úrræða í leitarvél á vefnum eittlif.is.

Sérsniðin leitarvél er nú aðgengileg á vefnum eittlif.is en henni er m.a. ætlað að auka sýnileika úrræða fyrir ungmenni í vanda og auðvelda þeim og aðstandendum þeirra að finna upplýsingar og aðstoð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarráðuneytinu um forvarnaverkefnið Eitt líf, sem er ætlað að sporna við notkun ávana- og fíkniefna, ekki síst meðal ungmenna.

„Leitarvélin er tengd ítarlegum gagnagrunni þar sem hægt er að kalla fram upplýsingar um úrræði sem gætu hentað viðkomandi m.a. út frá aldri, kyni, staðsetningu og tegund vanda, s.s. þeim sem tengjast geðheilbrigði, fíkn, ofbeldi, kynheilbrigði, félagsmálum eða fráfalli ástvinar,“ segir í tilkynningunni.

Í átakinu felst fjölþætt fræðslustarf sem er sérsniðið að ungmennum, foreldrum og starfsfólki skóla-, íþrótta- og tómstundastarfs.

„Aðgengi og framboð á ávanabindandi lyfjum og vímuefnum hefur breyst mikið á undanförnum árum. Við þurfum að vera vakandi fyrir afleiðingum þeirrar þróunar því hún snertir okkur öll. Markmið verkefnisins er að vekja okkur til umhugsunar og tala opinskátt um þessi mál til að koma megi í veg fyrir þann skaða sem þessi efni geta valdið, ekki síst ungu fólki. Samvinna og skýr markmið eru lykilatriði í að ná árangri í því verkefni,“ er haft eftir Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×