BTS-meðlimur heyrði í Laufeyju

BTS-meðlimurinn V virðist yfir sig hrifinn af tónlist Laufeyjar Lín …
BTS-meðlimurinn V virðist yfir sig hrifinn af tónlist Laufeyjar Lín Jónsdóttur. Samsett mynd

Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir kom aðdáendum sínum skemmtilega á óvart þegar hún deildi einkaskilaboðum sem hún hafði fengið á Instagram frá meðlimi hins geysivinsæla suðurkóreska strákabands BTS, V.

Hún deildi skilaboðunum í myndskeiði á TikTok og sagðist enn vera að jafna sig: „Þegar V í BTS fann tónlistina mína og birti hana á Instagram og sendi mér einkaskilaboð.“

@laufey

I’m still recovering 🥹 he is the sweetest ❤️

♬ Valentine by Laufey speed up - 🤒

Yfir sig hrifinn af tónlist Laufeyjar

Fram kemur á vef Koreaboo að V sé mikill djassunnandi og því kemur ekki á óvart að tónlist Laufeyjar hafi fangað athygli hans. Hann minntist fyrst á tónlist Laufeyjar árið 2022 þegar hann mælti með lagi hennar, Like the Movies, fyrir aðdáanda sinn á Weverse. 

Um svipað leyti hafði hann einnig notað sama lagið á Instagram-reikningi sínum, en hann er með hvorki meira né minna en 59 milljónir fylgjenda á miðlinum. Þá hafa glöggir fylgjendur tónlistarkonunnar einnig tekið eftir ummælum frá V við myndskeið Laufeyjar á Instagram. 

Skjáskot af ummælum sem V skrifaði undir myndskeið af Laufeyju …
Skjáskot af ummælum sem V skrifaði undir myndskeið af Laufeyju á Instagram. Skjáskot/Instagram
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav