„Það eru allir foreldrar eins og hauslausar hænur“ Máni Snær Þorláksson skrifar 1. júní 2023 11:31 Ósk Gunnarsdóttir og Magnea Guðmundsdóttir ræddu um áhrifin sem verkfall BSRB hefur haft á líf þeirra. Báðar eiga þær börn í Kópavogi. Bylgjan Tvær mæður sem eiga börn í Kópavogi segja verkföllin hafa raskað lífi þeirra og barnanna þeirra. Umræða um verkföllin hefur ekki verið nógu mikil að þeirra mati. Þær styðja félagsfólk BSRB í verkföllunum. „
Þetta lítur ekki vel út. Okkur líður eins og það sé ekki nein umræða í gangi og ekki neitt að gerast,“ segir Magnea Guðmundsdóttir, móðir barns í sérkennslu. Stuðningsfulltrúarnir á sérkennsludeildinni séu allir í verkfalli og því hafi sonur hennar nánast ekkert náð að mæta í skólann í verkfallinu. „Það er náttúrulega þannig að svona röskun á rútínu fyrir börn er alltaf erfið og ég tala nú ekki um börn með sérþarfir, það hefur mikil áhrif á þau líka.“ Sonur Magneu er fimmtán ára gamall og er með einhverfu. „Hann er ekki eins og annað fimmtán ára barn, ég get ekki skilið hann eftir einan heima,“ segir hún. „Svo á ég annan sem er ellefu ára, þetta hefur nánast engin áhrif á hann af því hann er með sinn bekkjarkennara sem kennir honum á daginn.“ Í lausu lofti Ósk Gunnarsdóttir, útvarpskona á FM957, er með þriggja ára dóttur sína á leikskóla í Kópavogi. „Mín upplifun sem foreldri er að þetta kom allt í einu,“ segir hún. Skortur hafi verið á upplýsingum um verkföllin og foreldrum sagt að fylgjast með fréttum. Verkföllin hafa sett starfið á leikskólanum úr skorðum. Ósk segist hafa fengið tölvupóst þar sem fram kom að dóttir hennar væri í ákveðnum hóp, hún ætti því að mæta fyrir hádegi einhverja daga en eftir hádegi aðra daga. Þá þurfi alltaf að sækja börnin í hádegishlénu. „Fyrir mitt leyti er þetta þannig að maður er í gjörsamlega lausu lofti,“ segir Ósk. „Maður þarf að sækja barnið sitt, raska þeirra rútínu og hvernig barnið mitt er búið að takast á þessu síðustu tvær vikur, hún er ekki að fíla þetta.“ Ósk segir dóttur sína þurfa rútínu en skortur sé á henni í verkföllunum. Það sé til að mynda erfitt að fara með hana aftur á leikskólann eftir að hún er sótt í hádegishlénu. „Þá vill hún ekkert fara inn á leikskólann, eðlilega. En maður skilar henni, hún er hágrátandi, ekki sátt og er í rauninni bara ekki lík sjálfri sér. Þessi úlfatími er svona sinnum hundrað, það er einhvern veginn skapið á henni, hún er tæp. Maður finnur það bara sjálfur sem fullorðinn einstaklingur að þegar maður dettur úr rútínu, það er bara mjög óþægilegt. Suma dagana þá sækjum við hana í hádeginu, aðra daga má hún ekki fara fyrir hádegi, það er engin rútína í þessu rútínuleysi.“ „Þau eru að sjá um æskuna“ Magnea og Ósk segjast báðar hafa samúð með fólkinu sem er í verkföllum. „Það er ekki eins og það séu há laun sem er verið að óska eftir, það er líka verið að óska eftir að það sama gildi fyrir alla,“ segir Magnea. „Þetta snýst aldrei um starfsmennina eða neitt þannig, það þarf að semja. Þau eru að sjá um æskuna, börnin okkar.“ Ósk grípur í sama streng: „Þetta er fólk sem er í leikskólum að sinna mjög krefjandi vinnu, að ala upp börnin okkar. Þau eru meira með börnunum okkar en við foreldrar, það er bara staðreynd. Þau eiga bara að fá mannsæmandi laun, það er ekki verið að biðja um háar tölur.“ Þá segir Ósk að henni finnist umræðan um verkföllin hafa verið lítil: „Það eru allir foreldrar eins og hauslausar hænur.“
Kjaramál Kjaraviðræður 2022-23 Skóla - og menntamál Grunnskólar Leikskólar Bítið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fleiri fréttir Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalsbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Sjá meira