Selja olíuvinnsluleyfi á verndarsvæði á lokadögum Trump sem forseta Kjartan Kjartansson skrifar 17. nóvember 2020 16:20 Trump forseti tekur í hönd Don Young, öldungadeildarþingmanns frá Alaska, til að fagna því að þeir opnuðu friðland í Alaska fyrir olíu- og gasvinnslu árið 2017. Vísir/EPA
Ríkisstjórn Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, ætlar að byrja að selja leyfi til olíuvinnslu á verndarsvæði í Alaska þrátt fyrir að nú séu aðeins um tveir mánuðir þar til ný ríkisstjórn tekur við völdum. Leyfin opna stórt svæði við Norður-Íshafið fyrir olíu- og gasvinnslu. Trump forseti hefur lengi haft hug á að leyfa jarðefnaeldsneytisfyrirtækjum að hefja vinnslu á Norðurskautsdýraverndarsvæðinu í Alaska. Það er ein stærstu ósnortnu víðerni Bandaríkjanna, um átta milljón hektarar lands. Leyfin sem nú verða seld ná til um 600.000 hektara lands við Norður-Íshafsströnd Alaska. Landnýtingarstofnun Bandaríkjanna auglýsti í dag eftir umsóknum frá olíu- og gasfyrirtækjum um leyfi fyrir leit á svæðum sem þau telja henta til leitar og vinnslu, að sögn New York Times. Sala á fyrstu leyfunum gæti í fyrsta lagi átt sér stað í kringum 17. janúar, aðeins þremur dögum áður en Joe Biden, verðandi forseti, tekur við embætti. Líklegt er talið að stofnunin líti fram hjá umsögnum sem berast og opni allt svæðið fyrir leit- og vinnslu þegar í stað. Vanalega hefur það tekið mánuði að fara yfir umsagnir og tilgreina hvaða svæði skulu seld undir olíu- eða gasvinnslu. Verði leyfin seld gæti ríkisstjórn Biden tekið söluna til endurskoðunar. Að henni lokinni gæti hún kosið að draga leyfin til baka. Frá Norðurskautsdýraverndarsvæðinu í Alaska, einum stærstu ósnortnu víðernum sem eftir eru í Bandaríkjunum.Vísir/EPA Trump og repúblikanar á Bandaríkjaþingi afnámu friðun á strandlengju verndarsvæðisins árið 2017. Talið er að milljónir tunna af olíu geti verið að finna á svæðinu. Engu að síður er óljóst hversu mikil áhugi er á svæðinu hjá fyrirtækjum í iðnaðinum. Minnst tíu ár gæti tekið að hefja olíuvinnslu en þá er búist við því að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti hafa dregist saman vegna aðgerða til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hagsmunasamtök olíufyrirtækja fögnuðu engu að síður ákvörðun Trump-stjórnarinnar um að byrja söluferlið. Það muni skapa vel borguð störf í Alaska.
Donald Trump Bandaríkin Norðurslóðir Loftslagsmál Bensín og olía Tengdar fréttir Afneitarar settir yfir loftslagsskýrslu á lokametrum Trump-stjórnarinnar Tveimur vísindamönnum sem hafna vísindalegum skilningi á loftslagsbreytingum hefur verið falið að stýra umfangsmestu loftslagsskýrslu bandarísku alríkisstjórnarinnar á lokamánuðum ríkisstjórnar Donalds Trump forseta. 17. nóvember 2020 11:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Fleiri fréttir Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Sjá meira
Afneitarar settir yfir loftslagsskýrslu á lokametrum Trump-stjórnarinnar Tveimur vísindamönnum sem hafna vísindalegum skilningi á loftslagsbreytingum hefur verið falið að stýra umfangsmestu loftslagsskýrslu bandarísku alríkisstjórnarinnar á lokamánuðum ríkisstjórnar Donalds Trump forseta. 17. nóvember 2020 11:01