Ríkið sýknað af kröfum Kristjáns Viðars og dánarbús Tryggva Rúnars Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 20. október 2020 21:32 Sakborningar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu sem sýknaðir voru af öllum ákærum af Hæstarétti í september árið 2018. VÍSIR
Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum Kristjáns Viðars Júlíussonar og dánarbús Tryggva Rúnars Leifssonar. Kristján krafði ríkið um 1,4 milljarða króna í bætur en krafa dánarbús Tryggva hljóðaði upp á 1,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Kröfurnar má rekja til Guðmundar- og Geirfinnsmálsins svokallaða en Tryggvi Rúnar og Kristján voru sakfelldir vegna hvarfs Guðmundar Einarssonar og Geirfinns Einarssonar árið 1980. Hæstiréttur tók mál þeirra upp og sýknaði fimmmenningana árið 2018. Mál Kristjáns Viðars og dánarbús Tryggva Rúnars eru aðskilin. Bótakrafa Kristjáns Viðars var byggð á því að hann hafi verið talinn sekur maður að ósekju í nærri fjörutíu ár. Auk þess sat hann inni í rúm sjö ár. Krafa Kristjáns tvíþætt Krafa Kristjáns fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur var tvíþætt. Annars vegar miskabótakrafa fyrir brot gegn friði, persónu og æru hans, sem hljóðar upp á 1,63 milljarða. Hins vegar var um að ræða kröfu að fjárhæð 25 milljóna vegna þess fjártjóns sem hann varð fyrir við það að möguleikar hans til tekjuöflunar óýttust. Hvað miskabótakröfuna varðar er vísað til ólögmætra rannsóknaraðferða og galla á málsmeðferð. Hér má lesa dóm Kristjáns Viðars Júlíussonar. Krafa dánarbús Tryggva þríþætt Dánarbú Tryggva Rúnars tefldi fram þríþættri kröfu. Í fyrsta lagi vegna þeirrar frelsisskerðingar sem hann sætti í gæsluvarðhaldi og vegna annarra rannsóknaraðgerða sem hafi beinst að honum. Í öðru lagi vegna þess áfellisdóms sem kveðinn var upp yfir honum í Hæstarétti árið 1980 og afleiðinga hans og í þriðja lagi vegna þeirrar frelsisskerðingar sem hann sætti meðan hann afplánaði fangelsisrefsingu. Tryggvi Rúnar lést árið 2009 og rekur dánarbú hans málið. Tryggvi var á sínum tíma dæmdur til 13 ára fangelsisvistar. Hér má lesa dóm dánarbús Tryggva Rúnars Jónssonar. Alls voru 774 milljónir greiddar úr ríkissjóði í gær til þeirra sem sýknaðir voru í Guðmundar- og Geirfinnsmálum í Hæstarétti í september 2018 og til maka og barna þeirra tveggja sem látnir eru. Þá fékk Kristján Viðar 204 milljónir og aðstandendur Tryggva Rúnars alls 171 milljón. Vísað til yfirlýsinga á blaðamannafundi árið 1977 Er í kröfum Kristjáns Viðars meðal annars vísað til þess að á blaðamannafundi hjá Sakadómi Reykjavíkur hafi því verið slegið föstu af hálfu handhafa ríkisvalds að stefnandi væri einn geranda í Guðmundar og geirfinnsmálinu. Kemur fram að: ,,Á þessum tímapunkti höfðu ákærur í málunum enn ekki verið gefnar út, og var fjarri því að fallið hefði dómur um málin. Eðli máls samkvæmt hafi mikið og ítarlega verið fjallað um þetta í fjölmiðlum á þessum tíma með tilheyrandi afleiðingum fyrir stefnanda.“ Fyrirgert rétti sínu til bóta Í máli Kristjáns Viðars vísar dómurinn til þess að Hæstiréttur hafi á sínum tíma ekki tekið efnislega afstöðu til málsatvika. Því standi málsatvikalýsing frá því þegar upphaflega var dæmt í málinu. Kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur að: „Með vísan til framburða þeirra sem stefnandi gaf fyrir dómi hefur hann sjálfur valdið þeim aðgerðum sem hann reisir kröfur sínar á. Því hefur stefnandi fyrirgert rétti sínum til bóta.“ Skorti skýrleika Í rökstuðningi dómsins í máli dánarbús Tryggva Rúnars segir m.a. að „verulega skortir á skýrleika í málatilbúnaði stefnanda um það hvernig stefnandi, það er dánarbú Tryggva Rúnars Leifssonar, geti verið aðili að máli þessu og á hverju dánarbúið byggi rétt sinn til hinna umkröfðu bóta.“
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira