Barcelona óstöðvandi

Aron Pálmarsson í leik með Barcelona.
Aron Pálmarsson í leik með Barcelona. Ljósmynd/Barcelona

Aron Pálmarsson skoraði eitt mark, gaf tvær stoðsendingar og stal einum bolta fyrir Barcelona í 36:25-stórsigri liðsins gegn Ademar León í spænsku 1. deildinni í dag.

Barcelona er nú búið að vinna alla 14 leiki sína í deildinni og virðist ekkert lið geta staðist því snúning. Það þarf ekki að koma á óvart því spænska stórveldið hefur staðið uppi sem sigurvegari í deildinni undanfarinn áratug.

Aron hefur skorað 21 mark í deildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert