Aldís tekur við keflinu af Val

Aldís Amah segist spennt fyrir nýju verkefni með Vodafone.
Aldís Amah segist spennt fyrir nýju verkefni með Vodafone. Ljósmynd/Aðsend, mbl.is/Kristinn Magnússon

Aldís Amah Hamilton hefur tekið við keflinu af Val Frey Einarssyni sem ný rödd Vodafone. Með þessu er Aldís orðin fyrsta konan til þess að vera föst vörumerkjarödd fjarskiptafélags á Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vodafone.

Haft er eftir Lilju Kristínu Birgisdóttur, forstöðumanni markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone. Hún segir fyrirtækið vera ánægt með fenginn. Rödd Aldísar smellpassi við nýjan tón sem vörumerkið gefi nú frá sér.

Þá sé Aldís spennt fyrir komandi verkefni.

Vodafone var mitt fyrsta síma fyrirtæki. Ég er meira að segja ennþá með sama númerið. Ég er spennt og þakklát fyrir traustið. Það er mikil gjöf að fá að taka við af Val og mun gera mitt besta til að fylla í hans flottu fótspor,“ er haft eftir Aldísi.

Aldísi þekkja landsmenn mögulega úr sjónvarðsþáttunum Svörtu sandar eða Katla. Hún hlaut tilnefningu til Edduverðlauna árið 2023 sem leikkona í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Svörtu söndum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er engin ástæða til þess að láta hugfallast, þótt allt gangi ekki samkvæmt áætlun. Málið er bara að halda ró sinni, hvað sem á dynur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav