Ætluðu að gefa jólasveinum forgang að bóluefni fyrir áróðursherferð Kjartan Kjartansson skrifar 25. október 2020 14:33 Jólasveinsleikari að störfum í Disney-skemmtigarði. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Getty
Heilbrigðisráðuneyti Bandaríkjanna hefur snarlega hætt við margra milljóna dollara opinbera kynningarherferð sem átti að vekja von á meðal almennings í kórónuveirufaraldrinum. Aðstoðarráðherra hafði boðið jólasveinaleikurum forgang að bóluefni við veirunni gegn því að þeir tækju þátt í herferðinni. Jólasveinarnir áttu að tala um gagnsemi bólusetningar gegn Covid-19. Auk þeirra ætlaði ráðuneytið að birta auglýsingar í sjónvarpi, útvarpi, netinu og hlaðvörpum til að „draga úr örvæntingum, hvetja til vonar og ná þjóðarbata“, að því er Wall Street Journal hefur upp úr gögnum um verkefnið sem blaðið hefur undir höndum. Alls átti að verja 250 milljónum dollara í áróðursherferðina, jafnvirði um 34,8 milljarða íslenskra króna. Hugmyndin um að bjóða þeim sem leika jólasveina aðgang að bóluefni á undan almenningi kom frá Michael Caputo, aðstoðarráðherra. Hann fór nýlega í veikindaleyfi í sextíu daga eftir að hafa greinst með krabbamein. Skömmu áður en það gerðist hafði hann birt myndband af vanstilltum reiðilestri þar sem hann sakaði vísindamenn alríkisstjórnarinnar meðal annars um uppreisn gegn Donald Trump forseta. Talsmaður heilbrigðisráðuneytisins fullyrðir að Alex Azar, ráðherra, hafi ekki haft grænan grun um tilraunir Caputo til að fá jólasveina til liðs við herferðina. Hann staðfestir að búið sé að blása samstarfið af. Herferðin er nú til innri endurskoðunar í ráðuneytinu. „Ég er til, sveinki, ef þú ert til“ Wall Street Journal vitnar í og birtir hljóðupptökur af símtali Caputo og Rics Erwin, formann Bræðrareglu alvöru skeggjaðra jólasveina, frá því í ágúst. Þar fullyrti Caputo að bóluefni fengi líklega vottun um miðjan nóvember og að því yrði dreift til framlínustarfsmanna fyrir þakkargjörðarhátíðina. „Ef þú og starfsbræður þínir eru ekki nauðsynlegir starfsmenn veit ég ekki hverjir þeir eru,“ segir Caputo í símtalinu. Staðhæfir hann að Trump forseti eigi eftir að „elska“ hugmyndina. „Þar sem þú værir að gera sveinka alvarlegan greiða þyrfti sveinki sannarlega að svara í sömu mynt,“ segir Erwin við Caputo. „Ég er til, sveinki, ef þú ert til,“ segir aðstoðarráðherrann. Hugmynd Caputo var að jólasveinarnir tækju þátt í viðburðum í allt að 35 borgum. Leikarar sem leika eiginkonu jólasveinsins eða jólaálfa hefðu einnig tekið þátt í herferðinni. Erwin, sem tók upp símtali og lét WSJ fá upptökuna, segist gríðarlega vonsvikinn með tíðindin um að hætt hafi verið við þátttöku jólasveinanna. „Þetta var stærsta von okkar fyrir jólin 2020 og nú lítur út fyrir að það verði ekki af því,“ segir hann. Demókratar á Bandaríkjaþingi höfðu gagnrýnt fyrirhuguðu kynningarherferðina og sökuðu Trump-stjórnina um að misnota almannafé til að fjármagna dulbúinn stjórnmálaáróður rétt fyrir forseta- og þingkosningar sem fara fram í næsta mánuði.
Donald Trump Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Jól Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Erlent Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael Erlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Rússar og Bandaríkjamenn í návígi á herstöð í Níger Fréttir Fleiri fréttir Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Sjá meira