Ímyndaði mér alltaf að ég myndi fá að standa í svona viðtali eftir landsleik Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 8. júní 2021 20:21 Guðmundur Þórarinsson átti góðan leik er Ísland og Pólland gerðu 2-2 jafntefli í dag. EPA-EFE/Jakub Kaczmarczyk Guðmundur Þórarinsson, vinstri bakvörður Íslands í 2-2 jafnteflinu við Pólland fyrr í dag, hefur beðið í dágóða tíma eftir því að fá tækifæri með A-landsliði Íslands og greip tækifærið með góðri frammistöðu í dag. „
Upplifunin var bara fín. Mér fannst við spila vel meira og minna í 90 mínútur. Vorum auðvitað að mæta öflugu liði sem er í undirbúningi fyrir EM en við erum búnir að vera saman núna í tvær vikur og mér fannst við svona eiginlega ná að setja saman allt sem við töluðum um í dag,“ sagði hinn 29 ára gamli Guðmundur í viðtali sem Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, tók fyrir RÚV að leik loknum í dag. „Við fylgdum okkar hlutverki frábærlega. Bara gríðarlega svekkjandi að ná ekki að vinna. Þannig sé ég leikinn akkúrat núna.“. „Varnarfærslurnar skiluðu sér mjög vel og mér fannst við fínir á boltanum þegar við unnum hann. Fannst við bæta það töluvert mikið frá leiknum á móti Færeyjum,“ bætti Guðmundur við. Beðið í dágóðan tíma eftir tækifærinu Guðmundur var í dag að leika sinn sjöunda landsleik en í raun þann fyrsta þar sem hann fær alvöru tækifæri til að sýna hvað í sér býr. Eftir að hafa leikið lengi vel á miðjunni er Guðmundur orðinn að vinstri bak- eða vængbakverði og spilaði hann þá stöðu mjög vel í dag. Guðmundur átti hornspyrnuna sem fyrra mark Íslands kom upp úr og hann lagði svo upp síðara mark Íslands. „Heldur betur, þetta er búið að vera rosalega erfitt á köflum. Ég einhvern veginn ímyndaði mér alltaf að ég myndi standa í svona viðtali eftir landsleik. Ég hélt alltaf í drauminn. Ég er að fá létta gæsahúð hérna. Það var frábært að fá þetta tækifæri.“ Löng leið „Mér leið rosalega vel á vellinum og fannst ég spila mjög vel. Þetta er búin að vera löng leið að þessu markmiði hjá mér, frá því ég man eftir mér. Fyrst og fremst var það frábær tilfinning að fá að stíga út í landsliðstreyjunni og spila góðan leik. Það er bara erfitt að setja orð á hitt einhvern veginn. Það var frábært að fá þetta tækifæri og vonandi nýtti ég það vel,“ sagði Guðmundur Þórarinsson að endingu. Viðtalið má sjá í heild sinni á íþróttavef RÚV.
Fótbolti Mest lesið Varði pabba-kroppinn eftir mynd af sér og Swift á ströndinni Sport Boehly fær að fjúka 2027 Enski boltinn „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti Dagskráin í dag: Valur og Breiðablik mætast í úrslitum, enska B-deildin og LUÍH Sport Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Fleiri fréttir Boehly fær að fjúka 2027 Arna spilar með FH næstu þrjú árin PSG mætir Lyon í undanúrslitum Barcelona ekki í vandræðum með Brann Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Tonali ákærður á Englandi fyrir fimmtíu meint brot Sjáðu mörkin fimm úr úrslitaleik Breiðabliks og ÍA Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Ákærður og horfir fram á fangelsisdóm fyrir kossinn óumbeðna Ætlar að kynna ensku úrvalsdeildina fyrir sundlaug í stúkunni Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti