Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði sitt fyrsta mark í norsku B-deildinni í knattspyrnu þegar lið hans Lilleström fékk Sandnes Ulf í heimsókn í dag.
Tryggvi skoraði á 25. mínútu og kom Lilleström 2:1-yfir en leiknum lauk með 4:2-sigri Lilleström.
Tryggvi gekk til liðs við norska félagið frá ÍA á dögunum en hann var í byrjunarliði Lilleström og lék fyrstu 87. mínútur leiksins áður en honum var skipt af velli.
Þá kom Björn Bergmann Sigurðarson inn á sem varamaður hjá Lilleström á 64. mínútu en Arnór Smárason var ekki í leikmannahóp Lilleström.
Lilleström er með 42 stig í öðru sæti norsku B-deildarinnar, 4 stigum minna en topplið Tromsö, en Lilleström á leik til góða á Tromsö.
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) October 25, 2020