Óttast að illa verði komið fyrir húsvernd með sameiningu Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 2. febrúar 2023 13:08 Minjastofnun mun heyra undir nýja og stærri stofnun; Náttúruverndar-og minjastofnun. Sviðsstjóra hjá Minjastofnun finnst að stofnunin eigi að heyra undir menningarmálaráðuneytið. Sviðsstjóri hjá Minjastofnun er hræddur um að illa verði komið fyrir húsvernd í landinu ef Minjastofnun verður undirsvið í mun stærri stofnun. Ekki hafi verið hlustað á sjónarmið starfsfólks Minjastofnunar í sameiningarferlinu. Minjavernd eigi miklu frekar heima í ráðuneyti menningarmála.
Umhverfisráðherra tilkynnti á dögunum um að ráðist verði í umfangsmikla sameiningu ríkisstofnana en tíu stofnanir sem nú heyra undir ráðuneytið verða að þremur. Minjastofnun er á meðal þeirra stofnana sem breytingin snertir. Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun, óttast þessa vegferð stjórnvalda. „Það hefur ekki verið hlustað mikið á okkar sjónarmið. Við höfum verið að leggja áherslu á faglega sérstöðu þessarar greinar sem er allt annars eðlis en aðrar stofnanir sem heyra undir umhverfisráðuneytið. Það má ekki gleyma því að húsvernd og minjavarsla í landinu er hluti af menningararfi þjóðarinnar. Byggingalist og menningararfur heyrir undir menningarmálaráðuneytið og því er í rauninni óskiljanlegt að við skulum vera sett í skúffu með stofnunum sem eru að sinna faglega séð og vísindalega séð allt annars konar verkefnum.“ Pétur segir að ekki hafi verið tekið mið af ábendingum þeirra við undirbúningsvinnu sameiningar. „Það er mikil óvissa í kringum þetta mál allt saman en það er mikið í húfi ef þetta fer á versta veg og þá er ég nú til dæmis að vísa í umræðu síðustu daga um hvernig fór fyrir vottun og gæðaeftirliti í íslenskum byggingaiðnaði þar sem sú stofnun sem annaðist rannsóknir og eftirlit á þeim vettvangi var lögð niður og afleiðingar af því blasa við,“ segir Pétur og bætir við. „Það er búið að vera að vinna að húsverndarmálum í nærri hálfa öld og ná gríðarlegum árangri. Sá málaflokkur hefur hingað til haft ákveðið sjálfstæði og ákveðið vægi í íslenskri menningu. Við óttumst að þetta svið verði bara eitthvað undirsvið í miklu stærri stofnun þar sem öll athygli verður á allt önnur mál. Þá er ég ansi hræddur um að það verði illa komið fyrir húsvernd í landinu og sama á í rauninni við um aðra þætti sem minjastofnun starfar að; það er að segja fornminjarnar.“ Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti sameiningaráform á fundi ríkisstjórnarinnar á þriðjudag.Vísir/ArnarHalldórs Pétur segir að starfsfólk Minjastofnunar hafi efasemdir og spurningar sem verði að svara. „Menningarverðmæti þjóðarinnar eru í húfi og við verðum að fá skýr svör frá stjórnvöldum um hvað þau eru að hugsa með þessari vegferð. Það er gott og gilt að sameina stofnanir og hagræða hjá ríkinu – það er enginn hér sem hefur neitt á móti því – en það verður líka að virða faglegt sjálfstæði ólíkra greina og það er líka mikilvægt að stjórnsýsla menningararfsins hafi nægilega mikið sjálfstæði til að geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi á því sviði en ef við erum sameinuð og með yfirmann stofnunar úr einhverri allt annarri átt þá náttúrulega missum við það vægi,“ segir Pétur.
Fornminjar Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Umhverfismál Loftslagsmál Orkumál Menning Tengdar fréttir Veðurstofustjóri í skýjunum Tíu stofnanir sem heyra undir umhverfisráðuneytið verða að þremur í umfangsmikilli sameiningu sem umhverfisráðherra boðar. Löngu tímabært að fækka stofnunum segir forstjóri Veðurstofunnar. 1. febrúar 2023 21:45 Tíu stofnanir verða að þremur Áform eru um að sameina tíu stofnanir sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í þrjár stofnanir. Ráðherra segir að markmiðið með sameiningunni sé að efla stofnanir ráðuneytisins. 1. febrúar 2023 10:51 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Sjá meira
Veðurstofustjóri í skýjunum Tíu stofnanir sem heyra undir umhverfisráðuneytið verða að þremur í umfangsmikilli sameiningu sem umhverfisráðherra boðar. Löngu tímabært að fækka stofnunum segir forstjóri Veðurstofunnar. 1. febrúar 2023 21:45
Tíu stofnanir verða að þremur Áform eru um að sameina tíu stofnanir sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið í þrjár stofnanir. Ráðherra segir að markmiðið með sameiningunni sé að efla stofnanir ráðuneytisins. 1. febrúar 2023 10:51