Áfall fyrir Selfoss

Sveinn Aron Sveinsson verður líklega ekki meira með Selfossi á …
Sveinn Aron Sveinsson verður líklega ekki meira með Selfossi á leiktíðinni. Mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Handknattleiksmaðurinn Sveinn Aron Sveinsson er líklega með slitið krossband í hné og verður frá út leiktíðina vegna þessa. Sveinn er uppalinn Valsmaður en hefur leikið með Selfossi á leiktíðinni.

Sveinn meiddist í leik gegn Haukum á föstudaginn var og Handbolti.is greinir frá að líklegast sé um slitið krossband að ræða og verður hornamaðurinn því frá keppni í upp undir ár.

Sveinn hefur skorað 20 mörk í fimm leikjum með Selfossi það sem af er leiktíð. Liðið er í fimmta sæti Olísdeildarinnar með ellefu stig eftir níu leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert