„Tiltölulega sprækur“ þegar smalar fundu manninn Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 29. október 2020 12:22 Maðurinn hafðist við í neyðarskýli í nótt en smalar fundu hann þegar birta tók. Vísir/Vilhelm
Karlmaður sem leitað var að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi fannst um ellefuleytið í morgun heill á húfi. Maðurinn hafðist við í neyðarskýli í nótt en smalar fundu hann eftir að birta tók og komu honum í hendur björgunarsveitarmanna. Maðurinn og björgunarsveitin eru rétt ókomin til Hafnar í Hornafirði. Leit að manninum hefur staðið yfir frá því gærkvöldi. Leitarsvæðið var nokkuð stórt en gul viðvörun var þar í gildi í alla nótt og allan morgun vegna austan storms og hríðar. Liðsstyrkur barst Landsbjörg í morgun þegar hópar björgunarsveitarfólks frá Austurlandi og Suðurlandi leystu þau af sem höfðu verið við leit í alla nótt. Á annað hundrað manns tóku þátt í björgunaraðgerðum og fleiri voru á leið á leitarvettvang þegar maðurinn fannst. Leitað frá klukkan átta í gærkvöldi Friðrik Jónas Friðriksson, aðgerðastjórnandi á Höfn, hafði verið við leitarstörf frá klukkan átta í gærkvöldi með einungis þriggja klukkustunda hvíld. „Það var mjög hvasst og leiðindaúrkoma með þessu og það var ástæðan fyrir því að þyrlan gat ekki athafnað sig nógu vel því það var allt of mikil úrkoma með þessu. Björgunarmenn fóru um svæðið og helstu gönguleiðir þarna og svo í morgun vorum við búnir að útvíkka leitarsvæðið og hann kemur niður á veg á því svæði þegar birti.“ Á annan tug björgunarsveitarmanna tóku þátt í leitinni sem hófst klukkan átta í gærkvöldi. Vel búinn og vanur göngumaður Maðurinn, sem er á tvítugsaldri hafðist við í neyðarskýli og var vel búinn. Hann er vanur útivistarmaður. Friðrik var spurður út í líðan mannsins; hvort hann hefði ekki verið kaldur og hrakinn. „Hann var tiltölulega sprækur. Það var enginn kuldi á honum í nótt. Hann var að labba niður veg þegar smalar sáu til hans og tilkynntu okkur málið.“ Ekki sé talin ástæða til að flytja manninn á sjúkrahús. „Það er alltaf jafn ánægjulegt þegar menn koma fólkinu heim.“ Já, er það ekki góð tilfinning? „Jú, það er yndisleg tilfinning þegar maður fær fréttir um að menn séu fundnir heilir á húfi.“
Lögreglumál Björgunarsveitir Hornafjörður Tengdar fréttir Maðurinn fundinn heill á húfi Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. 29. október 2020 11:00 Björgunarfólki berst liðsauki og þyrlan að hefja leit að nýju Björgunarsveitarfólk var að störfum í alla nótt við leit að manni í Stafafellsfjöllum í Lóni. Þyrla Landhelgisgæslunnar fer á ný til leitar í birtingu. 29. október 2020 06:50 Þyrla, drónar og sporhundur koma að leit að manni í Stafafellsfjöllum Björgunarsveitir á Suðausturhorninu og á Austfjörðum leita nú að manni í Stafafellsfjöllum í Lóni. Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina. 28. október 2020 22:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira
Maðurinn fundinn heill á húfi Maðurinn sem leitað hefur verið að í Stafafellsfjöllum frá því í gærkvöldi er fundinn heill á húfi. 29. október 2020 11:00
Björgunarfólki berst liðsauki og þyrlan að hefja leit að nýju Björgunarsveitarfólk var að störfum í alla nótt við leit að manni í Stafafellsfjöllum í Lóni. Þyrla Landhelgisgæslunnar fer á ný til leitar í birtingu. 29. október 2020 06:50
Þyrla, drónar og sporhundur koma að leit að manni í Stafafellsfjöllum Björgunarsveitir á Suðausturhorninu og á Austfjörðum leita nú að manni í Stafafellsfjöllum í Lóni. Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina. 28. október 2020 22:59