Óvissa eitur í beinum fjárfesta Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 20. mars 2023 12:00 Magnús Harðarson. Nasdaq Iceland Þrátt fyrir yfirtöku svissneska stórbankans UBS á Credit Suisse í gær reyndist það ekki vera nóg til að róa fjármálamarkaði. Við opnun markaða í morgun lækkuðu hlutabréf í Credit Suisse um 62%. Íslenska Kauphöllin er þá rauðglóandi - forstjóri Kauphallar segir óvissu eitur í beinum fjárfesta.
Vonir stóðu til að fréttir af yfirtökunni myndu verða til þess að endurheimta traust innan bankageirans og koma á jafnvægi á fjármálamörkuðum. Þessu var þó ekki fyrir að fara við opnun markaða nú í morgun. Hlutabréf í Credit Suisse tóku dýfu um 60,5 prósent en hlutabréf í UBS hafa þá fallið um 16% sem er mesta lækkun bankans á einum og sama deginum frá bankahruni 2008. Þá hafa hlutabréf í evrópskum bönkum einnig lækkað í dag. UBS keypti Credit Suisse á 3,24 milljarða Bandaríkjadala sem langt undir því verði sem bankinn var metinn á fyrir helgi eða 8 milljarða Bandaríkjadala. Þessi óróleiki hefur líka haft áhrif á íslensku Kauphöllina sem var að mestu rauðglóandi við opnun markaða. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallar, var spurður hvort hann kynni einhverja skýringu á því í ljósi þess að lending væri nú komin í mál svissneska bankans. „Ég rek þetta til óvissunnar sem fylgir svona viðburði. Þrátt fyrir að þetta sé ríkistryggð yfirtaka þá er þetta til merkis um að þarna hafi ástandið ekki verið gott. Ég rek þetta fyrst og fremst til óvissu sem felst í því að svona ástand getur haft áhrif á efnahagslífið og þar með til dæmis ákvarðanir Seðlabanka, verðbólgu og ganginn í efnahagslífinu almennt.“ Á miðvikudag verður ný vaxtaákvörðun Seðlabankans kynnt. Innherji á Vísi segir frá því í dag að mikill meirihluti markaðsaðila geri ráð fyrir að Seðlabankinn muni hækka vexti ýmist um 75 eða 100 punkta. Viðskiptamiðillinn leitaði til tuttugu og tveggja greinenda á fjármálamarkaði og flestir voru sammála um að hækkunin verði meiri en 50 punkta. Er ekki óhætt að segja að óvissa sé óvinur markaðarins? „Já, almennt séð þá er óvissa eitur í beinum fjárfesta, það er óhætt að segja það,“ segir Magnús. En það eru ekki bara slæmar fréttir af Kauphöllinni því í dag var þriðja og síðasta skrefið tekið í að færa íslenska hlutabréfamarkaðinn úr vaxtaflokki í nýmarkaðsflokk. Fyrirtækið FTSE Russell metur gæði hlutabréfamarkaða og reiknar vísitölur sem ýmsir sjóðir fjárfesta í samræmi við. Þessi hækkun gæti þýtt innflæði á íslenskan markað upp á 40-50 milljarða. „Það er bæði gæðastimpill á markaðnum og viðurkenning á því starfi sem hefur fram og það þýðir að erlendir fjárfestar eru viljugir til þess að koma inn á markaðinn.“
Fjármálamarkaðir Tengdar fréttir 167 ára „vandræðabarn bankakerfisins“ heyrir sögunni til 167 ára saga hins fornfræga banka Credit Suisse er á enda eftir að bankanum tókst ekki að standa af sér enn eina krísuna. Vandræði bankans, sem lýst hefur verið sem vandræðabarni bankakerfisins, hafa mallað árum saman áður en upp úr sauð um helgina. Nýleg saga svissneska bankans er stráð þyrnum af ævintýralegri stærð. 20. mars 2023 11:34 Flestir telja að Seðlabankinn hækki vexti um meira en 50 punkta Mikill meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 75 eða 100 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Eftir sem áður helgast spár um brattar vaxtahækkanir af þrálátri verðbólgu, hækkandi verðbólguvæntingum og kröftugri einkaneyslu. 20. mars 2023 09:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira
167 ára „vandræðabarn bankakerfisins“ heyrir sögunni til 167 ára saga hins fornfræga banka Credit Suisse er á enda eftir að bankanum tókst ekki að standa af sér enn eina krísuna. Vandræði bankans, sem lýst hefur verið sem vandræðabarni bankakerfisins, hafa mallað árum saman áður en upp úr sauð um helgina. Nýleg saga svissneska bankans er stráð þyrnum af ævintýralegri stærð. 20. mars 2023 11:34
Flestir telja að Seðlabankinn hækki vexti um meira en 50 punkta Mikill meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 75 eða 100 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Eftir sem áður helgast spár um brattar vaxtahækkanir af þrálátri verðbólgu, hækkandi verðbólguvæntingum og kröftugri einkaneyslu. 20. mars 2023 09:41