Stórsigur Blika í Borgarnesi

Telma Lind Ásgeirsdóttir fyrirliði Breiðabliks skoraði 9 stig í kvöld.
Telma Lind Ásgeirsdóttir fyrirliði Breiðabliks skoraði 9 stig í kvöld. Ljósmynd/Óttar Geirsson

Breiðablik var í miklu stuði í Borgarnesi í Subway-deild kvenna í körfuknattleik í kvöld og vann Skallagrím með þrjátíu stiga mun. 

Breiðablik sigraði 79:49 og var yfir 46:29 að loknum fyrri hálfleik. Í öðrum leikhluta náði Breiðablik afgerandi frumkvæði í leiknum og fylgdi því eftir með að vinna þriðja leikhluta 24:6. 

Var þetta fyrsti sigur Breiðabliks í deildinni á tímabilinu en Skallagrímur er án stiga í botnsætinu. 

Chelsey Shumpert var stigahæst hjá Breiðabliki með 28 stig en Anna Soffía Lárusdóttir skoraði 12 stig og tók 8 fráköst. 

Maja Michalska fyrirliði Skallagríms var stigahæst með 15 stig og tók 14 fráköst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert