„Öllum orustuþotum, sem verða sendar til Úkraínu, verður rústað og þær munu ekki hafa nein áhrif á gang stríðsins,“ sagði Dmitry Peskov, talsmaður Kremlverja, fyrir helgi.
Á fimmtudag tilkynntu pólsk stjórnvöld að þau sendi MiG-orustuþotur til Úkraínu og á föstudaginn fylgdu Slóvakar í fótspor Pólverja. Í heildina senda þessi tvö ríki sautján MiG-orustuþotur til Úkraínu.
En þetta virðist ekki hræða Rússa.
„Það er eins og þessi ríki hafi aðeins áhuga á að losna við gamlan búnað sem þau geta ekki notað lengur,“ sagði Peskov.