Lífið

Margrét Rán og Bryn­dís Hrönn eiga von á sínu fyrsta barni

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Parið Margrét Rán og Bryndís Hrönn eiga vona á sínu fyrsta barni í maí.
Parið Margrét Rán og Bryndís Hrönn eiga vona á sínu fyrsta barni í maí.

Tónlistarkonan Margrét Rán á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni Bryndísi Hrönn. Parið tilkynnti þessar gleðilegu fréttir með sameiginlegri færslu á Instagram.

„Lítil maístjarna væntanleg 2023,“ skrifa Margrét og Bryndís undir myndina.

Margrét er söngkona hljómsveitarinnar Vök og hefur einnig sungið með hljómsveitinni GusGus. Bryndís starfar sem verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík. Þær hafa verið saman í fimm ár og eru þær trúlofaðar.

Vísir náði tali af parinu rétt eftir að Vök hafði stigið á svið á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í síðasta mánuði.

„Það er alltaf jafn gaman að sjá hana koma fram. Ég verð alltaf svona aðeins öðruvísi skotin í henni þegar hún er uppi á sviði,“ sagði Bryndís þá.

Það eru spennandi tímar framundan hjá parinu.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×