Íslenskir hestar streyma úr landi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. febrúar 2021 15:17 Íslensku hestarnir njóta mikilla vinsælda víða um heim. Vísir/Vilhelm Árið 2020 voru 2.320 hross flutt út frá Íslandi en eftirspurn eftir íslenska hestinum erlendis hefur vaxið hratt. Þetta kemur fram á vef Íslandsstofu. Árið 2019 voru flutt út 1.509 hross frá Íslandi og nemur því aukningin milli ára 53 prósentum.
Samanlagt útflutningsverðmæti hrossa frá Íslandi árið 2020 var rúmlega einn og hálfur milljarður króna samkvæmt tölum Hagstofunnar, hálfum milljarði meiri en 2019. Fara þarf rúmlega tuttugu ár aftur í tímann, eða til ársins 1997 til að finna sambærilegar tölur en þá voru 2.565 hestar fluttir úr landi. Mikil aukningin varð á útflutningi til Bandaríkjanna eða 176 prósent og útflutningur til Bretlands nærri tvöfaldaðist. Íslnadsstofa segir þennan góða árangur mega meðal annars útskýra með markvissu markaðsstarfi Horses of Iceland undanfarin ár. Flest hross fóru að vanda til Þýskalands (974), næstflest til Svíþjóðar (306) og til Danmerkur (271). Athygli vekur að Bandaríkin eru í fjórða sæti (141) en áhugi á íslenska hestinum þar fer ört vaxandi. Fleiri markaðir sækja í sig veðrið. Sviss er í fimmta sæti (135) og jókst útflutningur þangað um 42 prósent milli ára. Fjöldi hesta sem seldur var til Belgíu (43) þrefaldaðist milli ára. Íslandsstofa segir vaxandi eftirspurn í Bretlandi ánægjulega en þangað fór 31 hestur. „Útflytjendur hafa löngum litið Bretlandsmarkað hýru auga vegna nálægðar og náinna tengsla við sterka markaði annars staðar í Evrópu. Strembið hefur reynst að vekja áhuga breskra hestaunnenda á íslenska hestinum vegna ríkra reiðmennskuhefða á stórum hestum, en þetta gæti verið vísbending um breytt viðhorf.“ Einnig fóru íslenskir hestar til nýrra markaðssvæða árið 2020, en þrjú íslensk hross voru flutt til Lettlands í fyrsta skipti. Í heildina voru þetta 314 stóðhestar, 1.015 hryssur og 991 geldingar. Þar af voru 156 fyrstu verðlauna hross. Þetta kemur fram í samantekt WorldFengs - upprunaættbók íslenska hestsins.
Hestar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnahlé í sjónmáli? Erlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Innlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Fleiri fréttir Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Sjá meira