Útför Johns Snorra Sigurjónssonar fjallgöngumanns verður haldin klukkan 13 þriðjudaginn 22. júní næstkomandi í Vídalínskirkju. Frá þessu greinir kona hans, Lína Móey Bjarnadóttir, á facebooksíðu sinni.
Ekkert hefur spurst til Johns Snorra síðan 5. febrúar síðastliðinn þegar hann týndist á K2, næsthæsta fjalli heims og jafnframt því hættulegasta. John freistaði þess að verða einn þeirra fyrstu í sögunni til að klífa tind fjallsins að vetri til.
Umfangsmikil leit var gerð að John og félögum hans sem týndust með honum, en hún bar ekki árangur.
„John Snorri er í huga og hjarta okkar alla daga,“ segir Lína Móey á facebook.