„Við þurfum að sýna ríkisstjórninni að við erum komin með nóg“ Snorri Másson skrifar 7. apríl 2021 11:07 Herra Hnetusmjör sendir ríkisstjórninni tóninn. Daniel Thor Rapparinn Herra Hnetusmjör hefur undanfarið gengið fram fyrir skjöldu á Instagram sem talsmaður þess að loka landinu til þess að varna kórónuveirunni vegar inn í landið. Hann var harðorður í garð stjórnvalda í gær. „
Jæja. Hvenær ætlum við að hætta að láta vaða yfir okkur?“ spurði rapparinn, Árni Páll Árnason að skírnarnafni, á hringrás sinni á Instagram í gær (e. story). Fylgjendur rapparans eru rúmlega 22.000 talsins og að uppistöðu ungt fólk, að ætla má. Fyrst birti Árni Páll skjáskot af frétt af því að nú væri farþegum utan Schengen hleypt inn í landið. Næsta mynd var síðan skjáskot með yfirliti af þeim hörðu takmörkunum sem Íslendingar lifa nú við hversdagslega, þar sem stór hópur fólks fær ekki stundað atvinnu sína eða líkamsrækt. Þarna eru stjórnvöld komin í mótsögn við sjálf sig, að mati Árna. Mynd og mynd fara ekki saman, að mati Herra Hnetusmjörs.Instagram Rapparinn hvetur til aðgerða: „Við þurfum að sýna ríkisstjórninni að við erum komin með nóg. Nóg af því að vera sett í annað sæti. Nóg af því að mega ekki hitta ástvini. Nóg af því að mega ekki stunda nám eða vinnu. Allt á meðan landamærin eru opnuð enn meir.“ Næst opnar hann fyrir tillögur frá fylgjendum sínum og spyr: „Mótmæli? Hætta að hlýða? Brenna allt? Opinn fyrir öllu.“ Vísir sló á þráðinn til rapparans sem kvaðst ekki hafa neinu við skilaboð sín í hringrásinni að bæta. Ætla má að rapparinn hafi orðið af miklum tekjum í gegnum faraldurinn en á Íslandi hafa samkomutakmarkanir verið við lýði í einhverri mynd samfleytt í meira en ár. Þessa stundina mega aðeins tíu koma saman á einkasamkomum. Barir og skemmtistaðir eru lokaðir, líkamsræktarstöðvum og sundlaugum er óheimilt að starfa og allar sviðslistir eru ólöglegar. Þetta á að gilda til 15. apríl en engin loforð hafa verið gefin um afléttingar þegar ákvörðun verður tekin um framhaldið. Rapparinn biður fylgjendur sína að gefa sér ráð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Lögreglan handtók mann sem sló til starfsmanns Krónunnar „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Sjá meira