Heimamenn fylla skarðið sem risinn skildi eftir Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 20. janúar 2022 14:10 Húsvíkingar og nærsveitungar verða ekki lengi án byggingarvöruverslunar. Vísir/Vilhelm Heimamenn á Húsavík láta ekki deigan síga þótt búið sé að loka einu byggingarvöruverslun bæjarins. Verktakar á svæðinu hafa tekið höndum saman og munu þeir opna nýja byggingarvöruverslun í bænum í næsta mánuði.
Tilkynnt var í október að Húsasmiðjan ætlaði sér að loka útibúum fyrirtækisins á Húsavík og Dalvík, við litla hrifningu heimamanna. Verslun Húsasmiðjunnar á Húsavík var lokað um áramótin en nú er verið að reisa nýja og stærri verslun fyrirtækisins á Akureyri, þar sem ætlunin er að þjónusta Norðurland. Byggingarverktakar á Húsavík og nágrenni telja sig þó ekki geta verið án byggingarvöruverslunar á svæðinu, og því hafa nokkrir þeirra tekið saman um rekstur nýrrar byggingarvöruverslunar sem mun bera nafnið Heimamenn. „Menn bara geta ekki verið án þess,“ segir Brynjar T. Baldursson, sem er framkvæmdastjóri Heimamanna. Segir hann að mikilvægt að hægt sé að nálgast þessa helstu hluti sem hægt er að fá í slíkum verslunum í heimabyggð. „Oft vantar bara einhverja hluti núna og þá er gott að geta gengið að því. Það skiptir miklu,“ segir hann. Reyndu að fá Húsasmiðjuna til að hætta við að hætta Nefnir hann að mikil uppbygging sé í gangi á svæðinu, til að mynda nýtt sextíu rýma hjúkrunarheimili, fjölbýlishús fyrir 55 ára og eldri, auk þess sem að fyrirhuguð sé töluverð uppbygging á iðnaðarsvæðinu við Bakka. Heimamenn reyndu ýmislegt til að fá Húsasmiðjuna til að hætta við að hætta, en allt kom fyrir ekki. „Það mætti gríðarlegu mótlæti. Það var allt reynt. Það var mikið fundað með þeim og eins með Byko en það virtist enginn vilji að halda þessu úti,“ segir Brynjar Brynjar T. Baldursson, framkvæmdastjóri Heimamanna. Á boðstólnum verða hefðbundnar byggingarvörur en Brynjar segir að nú þegar sé búið að ganga frá samningum við helstu birgja. Þá eru Heimamenn ekki að finna upp hjólið, en verslunin verður staðsett þar sem Húsasmiðjan var áður, að Vallholtsvegi 8. „Kannski heldur minna í sniðum, allavega í byrjun. Að vera með þessar grunnvörur til bygginga. Málningu, skrúfur, festingavörur og pípulagnaefni,“ segir Brynjar. Reikna með að opna í næsta mánuði Hann segir að verktakarnir sem standi að þessu renni svolítið blint í sjóinn, en þeir telji mikilvægt að hægt sé að versla byggingarvörur í heimabyggð. „Auðvitað er þetta brekka og menn fara svolítið blint af stað í þetta. Menn þurfa að leggja út býsn af peningum, það er þannig.“ Reiknað er með að reksturinn hefjist í næsta mánuði, sem fyrr segir í því húsnæði sem Húsasmiðjan var áður með. „Þeir afhenda að vísu ekki húsið fyrr en núna um mánaðarmótin. Þá fáum við þetta afhent og þá er ekkert annað að gera en að fara að rusla upp.“
Neytendur Norðurþing Byggingariðnaður Verslun Tengdar fréttir Húsasmiðjunni lokað á Dalvík og Húsavík Verslunum Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík verður lokað um næstu áramót. Starfsmönnum fyrirtækisins í bæjunum verður boðið að vinna í nýrri verslun á Akureyri sem opna á á Freyjunesi á næsta ári. 21. október 2021 19:22 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Viðskipti innlent Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Guðný og Sigurður Helgi til SI Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Sjá meira
Húsasmiðjunni lokað á Dalvík og Húsavík Verslunum Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík verður lokað um næstu áramót. Starfsmönnum fyrirtækisins í bæjunum verður boðið að vinna í nýrri verslun á Akureyri sem opna á á Freyjunesi á næsta ári. 21. október 2021 19:22