Öryggismál ekki í lagi þegar ferðamaður lést Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. júní 2022 13:41 Eggin í Gleðivík eru helsta aðdráttarafl Djúpavogs en til að komast að eggjunum þarf að fara framhjá iðnaðarsvæðinu niðri við höfnina. Vísir/Vilhelm Öryggismál í Gleðivík á Djúpavogi eru til skoðunar eftir að erlendur ferðamaður varð fyrir lyftara og lést í gær. Samkvæmt heimamönnum hafði kaðall sem átti að aðskilja gangandi og akandi umferð meðfram ströndinni verið tekinn niður vegna framkvæmda og var því ekki til staðar þegar banaslysið átti sér stað í gær.
Rúv greinir frá þessu í frétt sinni. Upp úr hádegi í gær barst lögreglunni á Austurlandi tilkynning um alvarlegt slys á hafnarsvæði í Gleðivík á Djúpavogi. Þar hafði karlmaður, erlendur ferðamaður á sjötugsaldri, hlotið áverka eftir að hafa orðið fyrir lyftara og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Þegar Vísir hafði samband við lögregluna á Austurlandi í morgun vildu þau ekki tjá sig um málið. Öryggiskaðall ekki til staðar Listaverkið Eggin í Gleðivík eftir Sigurð Guðmundsson sem er staðsett á höfninni í Gleðivík er eitt helsta aðdráttarafl Djúpavogs. Listaverkið samanstendur af eftirmyndum 34 fuglseggja sem eru slípaðar í grjót og var vígt árið 2009. Ferðamannastraumur gangandi vegfarenda út í Gleðivík að verkinu er nokkuð mikill og til að komast að eggjunum þarf að fara framhjá iðnaðarsvæði niðri við höfnina. Hafnarvörður greindi frá því við blaðamann að í fyrra hefði verið strengdur öryggiskaðall meðfram ströndinni til að aðskilja gangandi og akandi umferð. Þess utan vildi hann ekki tjá sig neitt um málið og vísaði til lögreglunnar. Í frétt Rúv um málið er haft eftir heimamönnum að öryggiskaðallinn hafi ekki verið til staðar þegar banaslysið átti sér stað í gær. Ástæðan fyrir því ku vera að hann hafði verið tekinn niður vegna lagnavinnu sem tengdist framkvæmdum við nýju frauðkassaverksmiðjuna.
Múlaþing Ferðamennska á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Heyrði mikla skruðninga í Hítárdal fyrir miðnætti á föstudag Innlent Veiðiþjófar stálu frá barni við Hítarvatn Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Helga aðeins 15 mínútur að landa fyrsta laxinum Innlent Fleiri fréttir Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Sjá meira