Framlengir núgildandi takmarkanir um eina viku Eiður Þór Árnason skrifar 4. maí 2021 11:12 Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra fyrir utan Ráðherrabústaðinn í dag. Vísir/vilhelm Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ætlar að framlengja gildistíma núgildandi sóttvarnaráðstafana um eina viku eða út 12. maí. Reglugerðin hefði að óbreyttu runnið út á miðnætti á morgun. Líklega verður fólk boðað í bólusetningu af handahófi eftir að forgangshópar verða kláraðir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til að staldrað yrði við í eina til tvær vikur til að ná aðeins betur stjórn á stöðu faraldursins innanlands en Svandís ákvað að framlengja núgildandi aðgerðir um eina viku. Þetta sagði hún að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Svandís telur að forsendur verði til þess að taka skref til afléttingar á aðgerðum innanlands í næstu viku í samræmi við áætlanir stjórnvalda. Tekur hún þar undir það sem sóttvarnalæknir sagði í minnisblaði sínu til ráðherra. „Þó að vel hafi gengið að halda faraldrinum í skefjum hér að undanförnu þá tel ég ráðlegt að fara varlega í allar afléttingar á takmörkunum innanlands þannig að ekki komi bakslag í útbreiðslu sýkinga. Hins vegar eru, að öllum líkindum, allar forsendur til þess að hægt verði að ráðast í frekari afléttingar á komandi vikum,“ segir í minnisblaði Þórólfs. Muni líklega hefja bólusetningu með slembiúrtaki Svandís sagði það mjög jákvætt að smit hafi fyrst og fremst verið að greinast í sóttkví undanfarna daga. Þá hafi bólusetning gengið vel og tekið fram úr áætlunum ríkisstjórnarinnar. Svandís vonast til að geta haldið áfram að aflétta aðgerðum innanlands sem fyrst. Ákvörðun um hvort farið verði í slembiúrtak í bólusetningum verður tekin á allra næstu dögum en niðurstöður Íslenskrar erfðagreiningar benda til að með þeim hætti verði hægt að ná hjarðónæmi fyrr. Að sögn Svandísar verður að öllum líkindum ákveðið að fara dreift í aldurshópana eftir að bólusetningu forgangshópa lýkur. Samanborið við núverandi áætlun gæti slík aðferð að jafnaði flýtt eða seinkað bólusetningu einstaklinga um tvær vikur. Núgildandi takmarkanir Áfram mun almennt vera tuttugu manna hámarksfjöldi í hverju rými út 12. maí næstkomandi. Sund- og baðstöðum og heilsu- og líkamsræktarstöðvum er heimilt að taka á móti helmingi af leyfilegum hámarksfjölda gesta, auk þess sem íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna eru heimilar án áhorfenda. Sviðslistir, þar með talið kórastarf, eru heimilar með allt að 50 manns á sviði og 100 sitjandi gestum í hverju hólfi, auk annarra skilyrða. Hámarksfjöldi við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga eru 30 manns en 100 manns mega vera viðstaddir útfarir. Veitingastaðir, skemmtistaðir og krár mega hafa opið til klukkan 21 og hafa að hámarki 30 gesti í rými með 2 metra nálægðarmörkum. Allir gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn klukkan 22. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Sex greindust innanlands og einn utan sóttkvíar Sex greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Einn greindist utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist utan sóttkvíar hér á landi frá 28. apríl. 4. maí 2021 10:57 Bein útsending: Svandís ræðir breytingar á aðgerðum innanlands Nú stendur yfir reglulegur þriðjudagsfundur ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. 4. maí 2021 10:32 Telja skynsamlegra að bólusetja yngri fyrst eða beita slembiúrtaki Skynsamlegt væri að breyta fyrirkomulagi bólusetninga og bólusetja annað hvort yngsta aldurshópinn næst eða beita slembiúrtaki að mati forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Ekki sé hægt að aflétta takmörkunum á grundvelli bólusetninga fyrr en sjötíu prósent landsmanna hafa verið bólusettir. 29. apríl 2021 17:36 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Fleiri fréttir Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Andstaða frá Íslandi og vera Ísraelsmanna litar keppnina í ár Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Sjá meira
Sex greindust innanlands og einn utan sóttkvíar Sex greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Einn greindist utan sóttkvíar. Um er að ræða fyrsta smitið sem greinist utan sóttkvíar hér á landi frá 28. apríl. 4. maí 2021 10:57
Bein útsending: Svandís ræðir breytingar á aðgerðum innanlands Nú stendur yfir reglulegur þriðjudagsfundur ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. 4. maí 2021 10:32
Telja skynsamlegra að bólusetja yngri fyrst eða beita slembiúrtaki Skynsamlegt væri að breyta fyrirkomulagi bólusetninga og bólusetja annað hvort yngsta aldurshópinn næst eða beita slembiúrtaki að mati forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar. Ekki sé hægt að aflétta takmörkunum á grundvelli bólusetninga fyrr en sjötíu prósent landsmanna hafa verið bólusettir. 29. apríl 2021 17:36