Forseti serbneska sambandsins: Vlahovic er betri en Haaland Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2022 15:30 Dusan Vlahovic hefur stimplað sig inn hjá stórliði Juventus. Hér er hann í leik á móti Genoa á síðustu leiktíð. EPA-EFE/LUCA ZENNARO Erling Braut Haaland og Dusan Vlahovic eru tveir ungir og mjög frambærilegir framherjar sem eru nú komnir í tvö af þekktustu fótboltafélögum heims. Frægð annars þeirra er þó mun meiri en hins. Sá lítt þekktari á sér hins vegar góðan talsmann.
Nenad Bjekovic, forseti serbneska knattspyrnusambandsins, tjáði sig nýverið um landa sinn Vlahovic og bar hann þá saman við nýja stjörnuframherja Englandsmeistaranna. Haaland er 21 árs en Vlahovic 22 ára. Manchester City keypti Haaland frá Borussia Dortmund í sumar en Juventus fékk Vlahovic frá Fiorentina í janúarglugganum. Haaland kostaði sextíu milljónir evra en Serbinn var tuttugu milljónum evra dýrari. Den serbiske fotballpresidenten vekker oppsikt: Vlahovic er bedre enn Haaland https://t.co/Xb1GwG9r64— Nettavisen Sport (@NettavisenSport) July 4, 2022 Sá norski skoraði 27 mörk í 29 leikjum með Dortmund á síðustu leiktíð en Vlahovic var „bara“ með 29 mörk í 45 leikjum með Fiorentina og Juventus. „Vlahovic er betri en Erling Braut Haaland. Hann meiri alhliða leikmaður,“ sagði Nenad Bjekovic í samtali við Tuttosport á Ítalíu. „Haaland hefur ótrúlega mikinn kraft en Vlahovic er litlu krafminni. Þeir eru síðan nánast jafnháir,“ sagði Bjekovic. „Framherji Juventus er hins vegar með betri tækni og leikstíll hans er betri. Manchester City og Juventus borguðu nánast það sama fyrir þessa leikmenn þegar þau keyptu þá frá Borussia Dortmund og Fiorentina,“ sagði Bjekovic.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Þjálfari Orra Steins sáttur: Hann hefur haldið kjafti Fótbolti Þurfti að eyða níu og hálfum tíma í leigubíl til að komast í burtu Sport Ákærður fyrir að slá barn sitt með blautu handklæði Sport Hrósar Alberti en Inter þarf að safna fyrir honum Fótbolti Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Körfubolti Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Íslenski boltinn Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum Körfubolti Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Körfubolti Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin Íslenski boltinn „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Palace á mikilli siglingu Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Sjá meira