Fyrrverandi upplýsingafulltrúi fer fram á 23 milljónir Vésteinn Örn Pétursson skrifar 17. júní 2021 20:41 Björn Þorláksson var ráðinn upplýsingafulltrúi hjá Umhverfisstofnun árið 2017. Vísir/Aðsend Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi Umhverfisstofnunar, hefur höfðað bótamál á hendur íslenska ríkinu á grundvelli þess að staða hans hjá Umhverfisstofnun hafi verið lögð niður með ólögmætum hætti. Hann fer fram á tveggja ára laun og miskabætur, en krafan nemur samtals 23 milljónum króna.
Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, eftir því sem Ríkisútvarpið greinir frá. Björn var ráðinn í stöðu upplýsingafulltrúa hjá Umhverfisstofnun árið 2017 en staðan var lögð niður í upphafi þessa árs. RÚV greinir frá því að í stefnunni komi fram að Björn hafi fyrirvaralaust verið kallaður á fund með forstjóra stofnunarinnar og mannauðsstjóra í nóvember á síðasta ári. Honum hafi þar verið afhent bréf þar sem honum var tilkynnt um verulegar breytingar á verkefnaskipulagi og áherslum tengdum starfi hans.´ Þá hafi honum verið boðið að taka þátt í hæfnismati, sem hann þáði með þeim fyrirvara að það stæðist lög, sem hann efaðist um. Í janúar á þessu ári hafi Birni síðan verið tilkynnt að leggja ætti starf upplýsingafulltrúa niður. Um mánuði síðar hafi Umhverfisstofnun auglýst starf sérfræðings í starfrænni þróun, fræðslu og miðlun til umsóknar. Samkvæmt stefnunni hafi verkefnalýsing þess starfs svipað til þeirra verkefna sem Björn sinnti meðan hann starfaði hjá stofnuninni. Björn byggir á því að ákvörðun um að leggja starf hans niður hafi verið ólögmæt og að hann hefði hæglega getað sinnt hinu nýja starfi sérfræðings sem Umhverfisstofnun auglýsti til umsóknar. Hann byggir þá á því að niðurlagning starfsins hafi verið afar íþyngjandi fyrir hann og leitt til fjárhagslegs tjóns. Þá hafi framganga Umhverfisstofnunar valdið honum andlegu tjóni, rýrt starfsheiður hans og álit annara á honum. Krafa Björns hljóðar því upp á laun fyrir tvö ár auk þriggja milljóna í miskabætur, samtals 23 milljónir króna.
Umhverfismál Dómsmál Stjórnsýsla Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira