Lilja ætlar ekki að taka RÚV af auglýsingamarkaði Jakob Bjarnar skrifar 26. maí 2023 14:31 Lilja ætlar að reyna að koma böndum á umsvif auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins. vísir/arnar Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra – fjölmiðlaráðherra – telur ekki skynsamlegt að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði vegna þess að þá færu auglýsingatekjurnar í auknari mæli til Facebook, Google og YouTube.
Lilja var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra Útvarps Sögu í vikunni og var þar meðal annars spurð um stöðuna á fjölmiðlamarkaði og hvað stjórnvöld ætluðu að gera til að styðja við bakið á frjálsum fjölmiðlum sem nú eiga í vök að verjast. Ætlar RÚV að koma í veg fyrir að fé streymi úr landi „Fjölmiðlum er að fækka og það er þróun sem ég hef stórkostlegar áhyggjur af,“ sagði Lilja. Hún tilkynnti þá Arnþrúði að hvað hún ætlaði að gera til að stemma stigu við þeirri þróun. „Í fyrsta lagi erum við með starfshóp sem hefur verið settur á laggirnar en þarf að skila hratt og örugglega, hefur það hlutverk að draga úr vægi RÚV á auglýsingamarkaðnum. Við erum búin að stúdera það mjög vel. Við teljum að það sé ekki skynsamlegt að taka RÚV af auglýsingamarkaði. Vegna þess að auglýsingatekjurnar eru mjög líklegar að fara í auknum mæli til Facebook, Google og YouTube.“ Þannig virðist ráðherra fjölmiðla meta það svo að hlutverk Ríkisútvarpsins sé meðal annars það að reyna með einhverjum hætti að standa í vegi fyrir því að auglýsingafé sem til skiptanna er hér á landi fari úr landi og í samfélagsmiðlaveiturnar. Ætlar að skera auglýsingadeildina niður „Hugmyndin er, og ég hef tjáð Útvarpsstjóra þetta, að auglýsingarnar verði í svokölluðu pant. Í stað þess að þau í raun og veru fari í svona mikla markaðssetningu á auglýsingunum þá geta fyrirtæki og einstaklingar pantað auglýsingar. Þannig að umfang auglýsingadeildarinnar á að minnka.“ Lilja sagðist aðspurð ekki hafa áhyggjur af því að þessu væri erfitt að framfylgja. Þetta yrði sett inn í þjónustusamning og að þessu væri nú verið að vinna. „Þetta eru miklar kerfisbreytingar,“ sagði Lilja sem hafði ekki svar á reiðum höndum hvað þær kynnu að kosta, hversu mikið það tæki af þeirri sneið sem Ríkisútvarpið tekur til sín á auglýsingamarkaði, sem er vel á 3. milljarð króna. „En það sem mun gerast er að það er ákveðið súrefni sem myndast fyrir aðra fjölmiðla. Og ég ætla að segja það að það er hagur allra fjölmiðla á Íslandi að standa vörð um þennan auglýsingamarkað.“
Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Samfélagsmiðlar Ríkisútvarpið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dregur framboðið til baka Innlent Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Innlent Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Erlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Innlent Niðri fyrir vegna Útlaganna Innlent Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Erlent Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Innlent Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Innlent Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Erlent Fleiri fréttir Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram „Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ „Óskiljanlegt að menn skuli leggjast svona lágt“ Dregur framboðið til baka Niðri fyrir vegna Útlaganna Bein útsending: Forsetaefnin skila inn framboðum sínum í Hörpu Kínverjar vara Bandaríkjamenn við að stíga á „rauðu strikin“ Samtök hernaðarandstæðinga fordæma „kúvendingu“ á afstöðu Íslands Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Sjá meira