Spá 4,3 prósenta verðbólgu í júní og minni útsölum Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 10. júní 2021 12:42 Þetta kemur fram í nýrri hagsjá Landsbankans. Vísir/Vilhelm Verðbólga lækkar úr 4,4% í 4,3% í júní ef marka má nýja verðbólguspá Landsbankans. Þá er gert ráð fyrir minni útsöluáhrifum í sumar en síðustu ár.
Hagsjá Landsbankans er birt mánaðarlega og er spá um verðbólgu til næstu fjögurra mánaða. Gústaf Steingrímsson er hagfræðingur í hagfræðideild Landsbankans. „Við gerum ráð fyrir því að tólf mánaða verðbólga verði 4,3 prósent í júní og að hún muni svo hjaðna hægt á næstu mánuðum og verða 4 prósent í september. Þetta er kannski aðeins hægari hjöðnun en við vorum að gera ráð fyrir í maí og það helgast fyrst og fremst af því að við gerum ráð fyrir að hækkanir á fasteignamarkaði verði meiri en við gerðum ráð fyrir þá,“ segir Gústaf Steingrímsson, hagfræðingur í hagfræðideild Landsbankans. Mesta hækkun síðan sumarið 2006 Miklar verðhækkanir hafa verið á fasteignamarkaði síðustu mánuði, en þær hafa áhrif á verðbólgu. „Ef við tökum verðhækkunina sem var á milli febrúar og maí núna í vor þá hækkaði fasteignaverð um 5,8 prósent. Ef við horfum framhjá árunum 2016 til 2017 þegar voru miklar verðhækkanir á fasteignamarkaði þá er þetta mesta fjögurra mánaða verðhækkun á fasteignamarkaði síðan sumarið 2005.“ Spá minni útsölum Þá gerir spáin ráð fyrir minni útsöluáhrifum í sumar en síðustu ár. „Þetta hefur verið á bilinu svona tíu til þrettán prósenta lækkanir í janúar og júlí á síðustu árum en eftir að faraldurinn hófst hafa þessar breytingar hafa verið mun minni, það er að segja að útsöluáhrifin hafa verið mun minni,“ sagði Gústaf. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar sem hafði það í för með sér að Íslendingar gerðu fatakaup sín síður erlendis. „Sem hefur leitt til þess að í rauninni hefur lagerinn eiginlega selst upp fyrir útsölur, innlendur fata- og skólager þannig að útsölurnar hafa verið mun minni og mun minni afsláttur. Og við gerum ráð fyrir því að núna í júlí verði verðlækkun milli júní og júlí mun minni heldur en hefur verið.“
Íslenskir bankar Verðlag Íslenska krónan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Tölum um neytendamál! Samstarf Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur Samstarf Ástin laðar að: Gott að vera kona á Íslandi, en ekki innflytjandi Atvinnulíf Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Viðskipti innlent Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Viðskipti innlent Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Viðskipti innlent Vonast til að koma dánarbúinu í góðar hendur Neytendur Forstjóri, snúsari, mótorhjólatöffari, veiðimaður og framúrskarandi á ryksugunni Atvinnulíf Fleiri fréttir Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Sjá meira