R. Kelly mun ekki bera vitni í eigin máli Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. september 2021 18:28 R. Kelly mun ekki stíga í vitnastúku í eigin máli. getty/Antonio Perez Tónlistarmaðurinn R. Kelly lýsti því yfir við dómara í dag að hann muni ekki bera vitni í dómsmáli sínu. Kelly er ákærður fyrir mansal og fjölda kynferðisbrota. Þetta þýðir að saksóknarar munu ekki fá tækifæri til að spyrja Kelly út í ákæruliðina og þá vitnisburði sem fram hafa komið hjá meintum brotaþolum hans.
Lögmenn Kellys höfðu þegar lýst því yfir að ólíklegt væri að hann settist upp í vitnastúku. Talið er líklegt að vitnaleiðslum muni ljúka í dag og að málflutningur hefjist á næstu dögum. Fréttastofa AP greinir frá. Verjendur Kellys hafa að miklu leyti stólað á vitnisburði fjölda fyrrverandi starfsmanna Kellys og annarra kunningja hans, sem hafa reynt að grafa undan ásökunum um að hann hafi kynferðislega brotið á konum, stúlkum og drengjum á þrjátíu ára tónlistarferli sínum. Flest vitni verjendanna hafa sagt að þau hafi aldrei séð Kelly misnota neinn og einn sagði Kelly alltaf hafa komið vel fram við kærustur sínar. Annar viðurkenndi að Kelly bæri ábyrgð á því að tónlistarferill hans hafi tekið á flug. Til samanburðar hafa saksóknarar kallað til tugi vitna síðan aðalmeðferð málsins hófst í Alríkisdómstóli í Brooklyn þann 18. ágúst síðastliðinn. Þar á meðal hefur verið fjöldi kvenna og tveir karlmenn sem hafa sakað Kelly um kynferðisofbeldi gegn sér. Flest voru þau sammála um það að Kelly hafi nýtt sér umboðsmenn sína, lífverði og aðstoðarmenn til að lokka til hans möguleg fórnarlömb á tónleikum Kellys, í verslunarmiðstöðvum og á skyndibitastöðum sem hann heimsótti reglulega. Í vitnisburði allra ásakendanna kom fram að þegar þeir hafi kynnst Kelly hafi hann beitt þá kynferðislegu- og andlegu ofbeldi. Fyrstu tilfellin má rekja til tíunda áratugar síðustu aldar. Einn fyrrverandi starfsmaður Kellys bar vitni fyrir dómi þar sem hann ýjaði að því að starfsmenn hafi fengið borgað til að horfa fram hjá misnotkuninni. Kelly hefur ítrekað neitað sök og heldur því fram að allir ásakendur hans séu aðdáendur sem hafi viljað notfæra sér frægð hans og frama þar til MeToo bylgjan hófst. Þá hafi þessir „aðdáendur“ snúist gegn honum.
Mál R. Kelly MeToo Bandaríkin Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Segir R. Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf Fyrsti karlinn, sem hefur ásakað tónlistarmanninn R. Kelly um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi, vitnaði fyrir dómi í gær og sagði Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf. Gærdagurinn var áttundi dagur réttarhaldanna yfir tónlistarmanninum. 31. ágúst 2021 12:44 Segir Kelly hafa smitað sig af herpes og neytt sig til að gangast undir þungunarrof Tónlistarmaðurinn R. Kelly nauðgaði 17 ára stúlku, skipaði henni að gangast undir þungunarrof og smitaði hana af herpes, vitandi að hann var sjálfur smitaður. Þetta kom fram við réttarhöld yfir söngvaranum í gær. 24. ágúst 2021 11:48 Greiddu mútur svo R. Kelly gæti gifst 15 ára stúlku Fyrrverandi tónleikaskipuleggjandi söngvarans R. Kelly viðurkenndi fyrir rétti í gær að hann hefði mútað opinberum starfsmanni til að falsa skilríki söngkonunnar Aaliyah þegar hún var 15 ára svo Kelly gæti gifst henni. Þau töldu þá að hún væri orðin ólétt eftir hann. 21. ágúst 2021 23:14 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Innlent Fleiri fréttir Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Sjá meira
Segir R. Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf Fyrsti karlinn, sem hefur ásakað tónlistarmanninn R. Kelly um að hafa beitt sig kynferðisofbeldi, vitnaði fyrir dómi í gær og sagði Kelly hafa lofað sér frægð í skiptum fyrir kynlíf. Gærdagurinn var áttundi dagur réttarhaldanna yfir tónlistarmanninum. 31. ágúst 2021 12:44
Segir Kelly hafa smitað sig af herpes og neytt sig til að gangast undir þungunarrof Tónlistarmaðurinn R. Kelly nauðgaði 17 ára stúlku, skipaði henni að gangast undir þungunarrof og smitaði hana af herpes, vitandi að hann var sjálfur smitaður. Þetta kom fram við réttarhöld yfir söngvaranum í gær. 24. ágúst 2021 11:48
Greiddu mútur svo R. Kelly gæti gifst 15 ára stúlku Fyrrverandi tónleikaskipuleggjandi söngvarans R. Kelly viðurkenndi fyrir rétti í gær að hann hefði mútað opinberum starfsmanni til að falsa skilríki söngkonunnar Aaliyah þegar hún var 15 ára svo Kelly gæti gifst henni. Þau töldu þá að hún væri orðin ólétt eftir hann. 21. ágúst 2021 23:14