Bóluefni Pfizer virki fyrir fimm til ellefu ára börn Árni Sæberg skrifar 20. september 2021 21:35 Pfizer segir bóluefni fyrirtækisins veita börnum á aldrinum fimm til tólf ára góða vörn. Getty/Jakub Porzycki/NurPhoto Lyfjaframleiðandinn Pfizer tilkynnti í dag að rannsóknir fyrirtækisins hafi sýnt fram á að bóluefni þess veiti börnum á aldrinum fimm til ellefu ára vörn gegn kórónuveirunni.
Í frétt AP fréttaveitunnar segir að Pfizer muni sækja um markaðsleyfi fyrir aldurshópinn hjá matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna innan skamms. Fyrirtækið muni síðan sækja um leyfi hjá evrópskum yfirvöldum. Þá segir einnig að fyrirtækið hafi í rannsókninni gefið börnum einungis einn þriðja af þeim skammti bóluefnis sem tólf ára og eldri fá. Samt sem áður veiti bólusetningin sama mótefnasvar í börnum og þeim sem fái fullan skammt. Börnin fá vægari aukaverkanir AP hefur eftir Bill Gruber, yfirmanni hjá Pfizer, að barnaskammturinn sé öruggur og að börnin upplifi vægari aukaverkanir en fullorðnir. Margir foreldrar í Bandaríkjunum hafi beðið bólusetninga barna þar sem Delta-afbrigði kórónuveirunnar og upphaf skólaársins hafi valdið mikilli aukningu í fjölda smitaðra barna undir tólf ára aldri í Bandaríkjunum. Kúba bólusetur börn allt niður í tveggja ára Flest ríki heims hafa hingað til ekki hafið bólusetningar barna undir tólf ára, þar á meðal Ísland. Hins vegar hófu heilbrigðisyfirvöld á Kúbu að bólusetja börn allt niður í tveggja ára gömul með bóluefni sem þróað var í landinu í síðustu viku. Þá hafa kínversk yfirvöld veitt tveimur þarlendum bóluefnaframleiðendum leyfi til bólusetningar þriggja ára barna.
Bandaríkin Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Tengdar fréttir Bólusetningar barna hefjast í Laugardalshöll Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hefjast í Laugardalshöll í dag en áætlað er að um 10 þúsund börn á höfuðborgarsvæðinu verði bólusett þar í dag og á morgun. 23. ágúst 2021 06:30 Um tveir þriðju boðaðra barna mættu í bólusetningu Um fjögur þúsund börn úr tveimur árgöngum mættu til bólusetningar í Laugardalshöll í dag. Tveir árgangar voru bólusettir, börn fædd 2006 og 2007, og var nokkuð jafnræði milli árganga ef litið er til mætingar. Þetta er fyrsti dagurinn þar sem börn undir sextán ára aldri eru bólusett við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu. 23. ágúst 2021 15:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Innlent Maðurinn ríkisborgari Möltu Innlent Fleiri fréttir Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Hefja árásir nærri Karkív Selenskí bauð Bjarna á friðarfund í Sviss Reyndu aftur að fá málið fellt niður vegna Stormy Daniels Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Sjá meira
Bólusetningar barna hefjast í Laugardalshöll Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hefjast í Laugardalshöll í dag en áætlað er að um 10 þúsund börn á höfuðborgarsvæðinu verði bólusett þar í dag og á morgun. 23. ágúst 2021 06:30
Um tveir þriðju boðaðra barna mættu í bólusetningu Um fjögur þúsund börn úr tveimur árgöngum mættu til bólusetningar í Laugardalshöll í dag. Tveir árgangar voru bólusettir, börn fædd 2006 og 2007, og var nokkuð jafnræði milli árganga ef litið er til mætingar. Þetta er fyrsti dagurinn þar sem börn undir sextán ára aldri eru bólusett við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu. 23. ágúst 2021 15:26