Sýnataka á smástirni virðist hafa gengið að óskum Kjartan Kjartansson skrifar 21. október 2020 22:43 Hreyfiarmur Osiris-Rex þegar hann snerti yfirborð Bennu í gærkvöldi. NASA/AP
Hreyfiarmur bandaríska geimfarsins Osiris-Rex nældi sér í sýni af yfirborði smástirnisins Bennu í gærkvöldi. Aðgerðin virðist hafa gengið að óskum en það gæti tekið allt að tíu daga að skera úr um hversu miklu af ryki og grjóti geimfarinu tókst að safna. Osiris-Rex smokraði sér upp að yfirborði Bennu í Næturgalagígnum á ellefta tímanum í gærkvöldi að íslenskum tíma. Hreyfiarmur þess þrýsti út köfnunarefnisgasi sem þyrlaði efni upp af yfirborðinu og safnaði því. Alls tók sýnatakan aðeins tíu sekúndur, að sögn Space.com. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA birti myndskeið af arminum þegar hann þyrlaði jarðveginum upp í dag. Bennu og Osiris-Rex eru í um 330 milljón kílómetra fjarlægð frá jörðu, utan við sporbraut jarðarinnar og handan við sólina. Well, I definitely touched down on Bennu!Preliminary data show the sampling head touched Bennu s surface for approximately 6 seconds, within 3 feet (1 meter) of the targeted location. #ToBennuAndBackMore details: https://t.co/4rBrB27FEZ pic.twitter.com/LjDQICmxJM— NASA's OSIRIS-REx (@OSIRISREx) October 21, 2020 Markmið leiðangursins er að safna að minnsta kosti sextíu grömmum af jarðvegi en vísindamennirnir sem standa að honum telja sig geta náð allt að kílói. Það gæti tekið tíu daga að komast að því hversu miklu Osiris-Rex náði að safna í gær. Ætlunin er að senda sýnin aftur til jarðar með hylki þegar geimfarið flýgur fram hjá jörðinni í september árið 2023. Þetta var í fyrsta skipti sem bandarískt geimfar nær í sýni frá smástirni úti í sólkerfinu okkar en japönsku geimförin Hayabusa 1 og 2 voru þau fyrstu til að vinna það afrek. Evrópska geimstofnunin ESA lenti lendingarfarini Philae á halastjörnunni 67P/Churyumov-Gerasimenko árið 2014. Talið er að Bennu, sem er aðeins stærra en fjallið Keilir, sé brot úr mun stærra smástirni sem sundraðist fyrir allt að milljarða ári. Þannig er líklegt að í Bennu sé að finna leifar af efni frá árdögum sólkerfisins okkar. Hafi Osiris-Rex ekki veitt fylli sína af jarðvegi í gær er enn möguleiki á tveimur tilraunum til viðbótar. Hafi allt gengið sem skyldi yfirgefur geimfarið Bennu í mars.
Geimurinn Vísindi Tækni Tengdar fréttir Grípur sér sýni úr smástirninu Bennu í kvöld Bandaríska geimfarið Osiris-Rex reynir að grípa bergsýni úr yfirborði smástirnisins Bennu í kvöld að íslenskum tíma. Til stendur að senda sýnið aftur til jarðar og gangi áformin eftir verður það stærsta sýni úr geimnum sem hefur komið til jarðar frá því að Apollógeimfararnir sneru heim frá tunglinu á 8. áratug síðustu aldar. 20. október 2020 15:44 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira
Grípur sér sýni úr smástirninu Bennu í kvöld Bandaríska geimfarið Osiris-Rex reynir að grípa bergsýni úr yfirborði smástirnisins Bennu í kvöld að íslenskum tíma. Til stendur að senda sýnið aftur til jarðar og gangi áformin eftir verður það stærsta sýni úr geimnum sem hefur komið til jarðar frá því að Apollógeimfararnir sneru heim frá tunglinu á 8. áratug síðustu aldar. 20. október 2020 15:44