Grét eftir að hún fékk verðlaunin í leikslok Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2021 16:00 Þetta var stór stund fyrir Fatemeh Khalili. Twitter Íranska kvennalandsliðið í handbolta er á sínu fyrsta stórmóti og það gengur ekkert sérstaklega vel hjá nýliðunum. Liðið er samt búið að fá sín fyrstu verðlaun.
Íran tapaði 39-11 á móti Rúmeníu í fyrsta leik og tapaði síðan 41-9 á móti Norðmönnum í gær. Það var engu að síður dramatísk stund í leikslok þegar markvörðurinn Fatemeh Khalili var valin besti leikmaðurinn. What a special moment, Fatemeh Khalili Behfar (@IRIHF_Official)!#SheLovesHandballpic.twitter.com/bnla4f4APi— Women's Handball WCh Spain 2021 (@SheLOVsHandball) December 6, 2021 Fatemeh Khalili átti einnig mjög góðan leik á móti Rúmeníu þegar hún varði 18 skot. Að þessu sinni varði hún sjö skot í fyrri hálfleiknum þar af þrjú hraðaupphlaup og tvö af línu. Íranska liðið komst reyndar í 2-1 í leiknum en norska liðið endaði fyrri hálfleikinn á 21-1 spretti. Khalili grét þegar það var tilkynnt að hún hefði verið valin maður leiksins. Allir samherjarnir hópuðust líka í kringum hana og úr varð gleðistund fyrir lið sem hafði tapað með 32 marka mun. Norge tok en knusende seier i VM, men Irans målvakt Fatemeh Khalili Behfar tok til tårer etter å ha blitt kåret til banens beste. https://t.co/op0eSuvlyV— Dagbladet Sport (@db_sport) December 5, 2021 Norsku stelpurnar gátu svo sannarlega glaðst með Khalili sem var þarna að skrifa sögu þjóðar sinnar á handboltavellinum þrátt fyrir mjög erfiða kvöldstund. Khalili er 25 ára gömul, spilar með tyrkneska félaginu Antalya Anadolu og hefur spilað yfir tvö hundruð landsleiki á ferlinum. Það má sjá þessa eftirminnilegu stund hér fyrir ofan.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Stjarnan handtekin á leiðinni á völlinn: „Hann er á leið í fangelsi“ Golf Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Handbolti Upphafshöggi frestað vegna banaslyss skammt frá vellinum Golf Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Körfubolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Fleiri fréttir Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu Sjá meira