Reiðhjólaslys varð til þess að SÍ endurskoðar bætur afturvirkt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 22. október 2021 15:00 Töluverð vinna bíður starfsmanna Sjúkratrygginga Íslands að fara yfir þau mál sem dómurinn snertir. Vísir/Egill Sjúkratryggingar Íslands munu fara yfir allar ákvarðanir sem teknar hafa verið síðustu fjögur árin sem tengjast bótagreiðslum úr sjúklinga- og slysatryggingum vegna miska eða læknisfræðilegrar örorku. Tilefnið er dómur Hæstaréttar frá því í sumar, þar sem tekist var á um uppgjör bóta vegna reiðhjólaslyss árið 2015.
Í tilkynningu frá SÍ segir að farið verði yfir allar ákvarðanir sem teknar hafi verið vegna bótagreiðslna frá og með 3. júní 2017. Aðeins verða tekin fyrir mál þar sem talið er að endurskoðun þeirra geti leitt til hærri bótagreiðslna fyrir tjónþola. „Í þess konar bótamálum er algengt að leggja þurfi saman svokölluð miskastig, samkvæmt miskatöflu örorkunefndar. Endurskoðunin nú mun taka til allra ákvarðana þar sem svokallaðri hlutfallsreglu var beitt við samlagninguna,“ segir í tilkynningunni. Tekið er fram að tjónþolar eða umboðsmenn þeirra þurfi ekki að óska sérstaklega eftir endurskoðun, þar sem endurupptakan sé að frumkvæði SÍ. Þá er einnig bent á það að endurupptakan muni hefjast á næstunni en að nokkurn tíma muni taka að meta hvaða mál verði tekin upp. Hæstiréttur staðfesti ekki grundvöll hlutfallsreglunnar Í tilkynningunni er vísað í dóm Hæstaréttar frá því þann 3. júní síðastliðinn þar sem tryggingafélagið Vörður og starfsmaður Isavia tókust á um uppgjör bóta vegna reiðhjólaslyss sem maðurinn varð fyrir á leið úr vinnu árið 2015. Dómur Hæstaréttar frá því í sumar hefur þessar afleiðingar.Vísir/Vilhelm Taldi tryggingafélagið að við uppgjör bóta ætti ekki að leggja saman miskastig vegna orkutaps af völdum hvers áverka um sig samkvæmt miskatöflum örorkunefndar heldur beita svokallaðri hlutfallsreglu. Fór svo að Hæstiréttur dæmdi tryggingafélaginu í óhag. Segir í tilkynningu SÍ að ákveðið hafi verið að taka upp mál þar sem hinni svokölluðu hlutfallsreglu hafi verið beitt vegna þessarar niðurstöðu Hæstaréttar, þar sem grundvöllur reglunnar hlaut ekki staðfestingu. „Áhrif dómsins hafa verið til ítarlegrar skoðunar hjá SÍ og leiddi sú skoðun til þess að ákveðið var að fara yfir öll mál þar sem reglunni hafði verið beitt, fjögur ár aftur í tímann.“
Tryggingar Dómsmál Samgönguslys Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Fleiri fréttir Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Sjá meira