Landsréttur staðfesti í gær héraðsdóm í máli Arctica finance gegn Fjármálaeftirlitinu. Fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur var sekt sem FME hafði lagt á Arctica finance upp á 72 milljónir króna árið 2017 vegna brota fyrirtækisins á lögum um fjármálafyrirtæki og reglum um kaupaukakerfi lækkuð í 24 milljónir.
Arctica finance hafði áfrýjað málinu til Landsréttar og krafðist fyrirtækið þess að með dómi yrði ógilt ákvörðun FME um úrbótakröfu og stjórnvaldssekt. Var hinn áfrýjaði dómur óraskaður í Landsrétti.
Starfsmenn fyrirtækisins fengu að kaupa svokallaða B-, C- og D-hluti í félaginu á árunum 2012-2017, en hver starfsmaður keypti 10 þúsund hluti á nafnverði, það er fyrir 10 þúsund krónur samtals. Var hver flokkur svo tengdur við ákveðna deild innan fyrirtækisins þar sem viðkomandi starfsmaður starfaði. Voru arðgreiðslur vegna hlutanna svo í samhengi við afkomu deildanna. FME taldi þetta þar með vera kaupaukakerfi í raun og lagði fyrrnefnda sekt á fyrirtækið.
Héraðsdómur staðfesti þessa niðurstöðu FME, en taldi hins vegar að lögin frá 2011 hefðu verið of víðtæk og að ekki væri hægt að miða við þau fyrr en árið 2015 þegar þeim var breytt. Taldi dómurinn því aðeins að brot Arctica hefði staðið yfir árin 2016 og 2017 og minnkaði sektina í hlutfalli við það.