Körfubolti

Gengur mjög illa að vinna gömlu þjálfarana sína

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Styrmir Snær Þrastarson hefur spilað vel með Þórsliðinu og sést hér skora á móti Stjörnunni.
Styrmir Snær Þrastarson hefur spilað vel með Þórsliðinu og sést hér skora á móti Stjörnunni. Vísir/Elín Björg

Þórsarar úr Þorlákshöfn hafa verið að gera frábæra hluti í Domino´s deild karla í körfubolta í vetur og eru í öðru sæti deildarinnar þegar keppni hefst á ný eftir landsleikjahlé.

Þórsarar fá Njarðvík í heimsókn í Icelandic Glacial höllina í Þorlákshöfn í kvöld en leikurinn hefst klukkan 18.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3.

Þórsliðið hefur unnið þrjá leiki í röð og alls sex af síðustu sjö leikjum sínum. Eina tap liðsins frá og með 22. janúar síðastliðinn var í framlengingu á heimavelli á móti Tindastól.

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stólanna og fyrrverandi þjálfari Þórsliðsins, sótti þá tvö stig í sína heimabyggð.

Sá leikur var enn eitt dæmið um það að Þórsurum gengur mjög illa að vinna gömlu þjálfarana sína þegar þeir eru farnir til starfa annars staðar.

Leikurinn á móti Tindastól á síðasta degi janúarmánaðar var sjötti leikurinn í röð í deildarkeppninni þar sem Þórsarar tapa á móti liði undir stjórn gamals þjálfara.

Í kvöld eru Þórsarar í sömu slóðum því nú fá þeir Njarðvíkinga í heimsókn í Þorlákshöfn.

Þjálfari Njarðvíkurliðsins er einmitt Einar Árni Jóhannsson sem þjálfaði Þórsarar í þrjú tímabil frá 2015 til 2018. Í viðbót við það er Friðrik Ingi Rúnarsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkurliðsins í vetur en hann var þjálfari Þórsara á síðasta tímabili.

Einar Árni hefur unnið alla þrjá deildarleiki sína á móti Þór síðan að hann hætti að þjálfa í Þorlákshöfn.

Þórsarar hafa einu sinni unnið sinn gamla þjálfara í efstu deild en það var þegar þeir mættu Þórsurum frá Akureyri á heimavelli sínum tímabilið 2016-17. Benedikt Guðmundsson var þá þjálfari Akureyrar-Þórsara en hafði áður þjálfar í Þorlákshöfn í fimm tímabil þar af fjögur í efstu deild.

Tveir leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport 3 í kvöld því klukkan 20.15 verður sýnt beint frá leik Stjörnunnar og Tindastóls í Garðabænum. Útsendingin hefst klukkan 20.05.

Þórsliðið á móti gömlum þjálfurunum sínum í efstu deild:

Á móti Baldri Þór Ragnarssyni: 0 sigrar og 3 töp

  • 2020-21: 1 tapleikur
  • 1 stigs tap í framlengingu Þorlákshöfn í janúar (103-104)
  • 2019-20: 2 tapleikir
  • 6 stiga tap í Þorlákshöfn í mars (82-88)
  • 5 stiga tap á Sauðárkróki í nóvember (67-72)

Á móti Einari Árna Jóhannssyni: 0 sigrar og 3 töp

  • 2019-20: 1 tapleikur á móti Njarðvík
  • 24 stiga tap í Njarðvík í desember (77-101)
  • 2018-19: 2 tapleikir á móti Njarðvík
  • 10 stiga tap í Þorlákshöfn í október (80-90)
  • 6 stiga tap í Njarðvík í janúar (76-82)

Á móti Benedikt Guðmundssyni: 1 sigur og 1 tap

  • 2016-17: 1 sigurleikur og 1 tapleikur á móti Þór Ak.
  • 11 stiga tap á Akureyri í nóvember (69-80)
  • 5 stiga sigur í Þorlákshöfn í febrúar (73-68)

Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×