Valskonur endurheimta þrjár af þeim bestu í deildinni: Þetta breyttist á 102 dögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2021 10:31 Helena Sverrisdóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir hafa spilað saman með landsliðinu en hafa verið andstæðingar í félagsliðum. Þegar deildin hefst á ný spilar þær í fyrsta sinn saman með félagsliði. Hér sækir Helena að Hildi þegar þær voru í Val og KR. Vísir/Daníel Þór Domino´s deild kvenna í körfubolta hefst á nýjan leik í kvöld með heilli umferð. Þetta verða fyrstu leikir deildarinnar í 102 daga. Vísir kannaði það betur hvaða breytingar hafa orðið á liðunum í deildinni síðan keppni var hætt í byrjun október. Tvö liðanna hafa nú sem dæmi loksins fengið bandaríska leikmanninn sem þau byrjuðu mótið án. Tveir evrópskir leikmenn hafa líka farið á milli íslenskra liða í þessu hléi. Þrjú lið í deildinni mæta hins vegar með alveg óbreytt lið frá því í haust en það eru lið Skallagríms, Hauka og Keflavíkur. Kórónuveiran var þegar búin að setja sinn svip á fyrstu umferðir Domino´s deildar kvenna í haust því liðin spiluðu ekki jafnmarga leiki í upphafi móts. Nýliðar Fjölnis unnu alla þrjá leiki sína en voru bara eitt af þremur liðum sem lék þrjá leiki. Hin voru Haukar og Breiðablik. Breiðablik vann reyndar einn af þremur leikjum sínum en tapaði honum síðan 20-0 á kæru eftir að hafa notað leikmann sem átti eftir að taka út eins leiks bann síðan að keppni var hætt í mars. Þessi kæra færði Valskonum líka eina sigur sinn í upphafi móts en Valur spilaði bara tvo leiki eins og Skallagrímur, Snæfell og KR. Keflavíkurliðið náði hins vegar aðeins að spila einn leik vegna kórónuveirusmits í liðinu en Keflavík vann þann leik og er því eitt af þremur taplausum liðum ásamt Fjölni (3-0) og Skallagrími (2-0). Valskonur voru ekki sannfærandi í fyrstu tveimur leikjum sínum en hafa nú fengið svaka liðstyrk frá leikjunum í byrjun móts. Þrír af bestu leikmönnum deildarinnar í fyrra eru nefnilega komnar til baka. Hin bandaríska Kiana Johnson missti af leikjunum í haust af því að hún var ekki komin til landsins, Hildur Björg Kjartansdóttir meiddist á fingri og Helena Sverrisdóttir var í barneignarfríi. Allar hafa nú bæst við hópinn. Það er ljóst að þetta er mikil innspíting í leik Valsliðsins en þessir þrír leikmenn voru saman með 51,8 stig, 24,1 fráköst og 14,6 stoðsendingar að meðaltali á Íslandsmótinu í fyrra. Hildur var þá með KR en hinar tvær með Val. Tveir evrópskir leikmenn hafa skipt um félög frá því í haust. Fjölniskonur urðu líka að skipta út einum erlenda leikmanni sinum en sú hin sama, Fiona O'Dwyer hafði líka misst af tveimur af þremur leikjum Grafarvogsliðsins í haust. Fiona O'Dwyer óskaði eftir að losna undan samningi og í staðinn fékk Fjölnir hina portúgölsku Söru Djassi. Búlgarski bakvörðurinn Iva Georgieva byrjaði tímabilið með Snæfelli en er nú kominn til Breiðabliks. Hún fór af landinu en kom aftur eftir áramót og samdi við Blika. Litháinn Kamile Berenyte færði sig líka um set. Hún byrjaði tímabilið hjá KR en er nú komin til Snæfells. Snæfellsliðið hefur nú líka fengið til sín hina bandarísku Haiden Denise Palmer sem missti af leikjum liðsins í haust. KR-konur fá hins vegar bæði hina bandarísku Taryn McCutcheon og hina finnsku Anniku Holopainen til baka og auk þess er Ástrós Lena Ægisdóttir komin aftur heim frá Danmörku. Stöð 2 Sport sýnir tvo leiki í beinni í kvöld. Útsending frá leik Fjölnis og Hauka hefst klukkan 18.05 en útsending frá leik Vals og Skallagríms hefst klukkan 20.10. Báðir leikir eru sýndir á Stöð 2 Sport. Hinir tveir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 og eru: Breiðablik-Keflavík og Snæfell-KR. Hér fyrir neðan má sjá breytingarnar á liðunum átta síðan að deildin var sett í lás í október. Breytingar á liðum Domino´s deild kvenna: [Raðað eftir stig og sæti liðanna í deildinni] 1. Fjölnir 6 stig Inn: Sara Djassi Út: Fiona O' Dwyer 2. Skallagrímur 4 stig Engar breytingar 3. Haukar 4 stig Engar breytingar 4. Keflavík 2 stig Engar breytingar 5. Valur 2 stig Inn: Kiana Johnson, Hildur Björg Kjartansdóttir, Helena Sverrisdóttir Út: Auður Íris Ólafsdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 6. Breiðablik 0 stig Inn: Iva Georgieva, Telma Lind Ásgeirsdóttir Út: Hafrún Erna Haraldsdóttir 7. Snæfell 0 stig Inn: Haiden Denise Palmer, Kamilé Berenyté Út: Iva Georgieva 8. KR 0 stig Inn: Ástrós Lena Ægisdóttir Út: Kamilé Berenyté Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Í beinni: Valur - Olympiacos | Fyrri úrslitaleikur Vals í Evrópubikarnum Handbolti Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Fótbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Vísir kannaði það betur hvaða breytingar hafa orðið á liðunum í deildinni síðan keppni var hætt í byrjun október. Tvö liðanna hafa nú sem dæmi loksins fengið bandaríska leikmanninn sem þau byrjuðu mótið án. Tveir evrópskir leikmenn hafa líka farið á milli íslenskra liða í þessu hléi. Þrjú lið í deildinni mæta hins vegar með alveg óbreytt lið frá því í haust en það eru lið Skallagríms, Hauka og Keflavíkur. Kórónuveiran var þegar búin að setja sinn svip á fyrstu umferðir Domino´s deildar kvenna í haust því liðin spiluðu ekki jafnmarga leiki í upphafi móts. Nýliðar Fjölnis unnu alla þrjá leiki sína en voru bara eitt af þremur liðum sem lék þrjá leiki. Hin voru Haukar og Breiðablik. Breiðablik vann reyndar einn af þremur leikjum sínum en tapaði honum síðan 20-0 á kæru eftir að hafa notað leikmann sem átti eftir að taka út eins leiks bann síðan að keppni var hætt í mars. Þessi kæra færði Valskonum líka eina sigur sinn í upphafi móts en Valur spilaði bara tvo leiki eins og Skallagrímur, Snæfell og KR. Keflavíkurliðið náði hins vegar aðeins að spila einn leik vegna kórónuveirusmits í liðinu en Keflavík vann þann leik og er því eitt af þremur taplausum liðum ásamt Fjölni (3-0) og Skallagrími (2-0). Valskonur voru ekki sannfærandi í fyrstu tveimur leikjum sínum en hafa nú fengið svaka liðstyrk frá leikjunum í byrjun móts. Þrír af bestu leikmönnum deildarinnar í fyrra eru nefnilega komnar til baka. Hin bandaríska Kiana Johnson missti af leikjunum í haust af því að hún var ekki komin til landsins, Hildur Björg Kjartansdóttir meiddist á fingri og Helena Sverrisdóttir var í barneignarfríi. Allar hafa nú bæst við hópinn. Það er ljóst að þetta er mikil innspíting í leik Valsliðsins en þessir þrír leikmenn voru saman með 51,8 stig, 24,1 fráköst og 14,6 stoðsendingar að meðaltali á Íslandsmótinu í fyrra. Hildur var þá með KR en hinar tvær með Val. Tveir evrópskir leikmenn hafa skipt um félög frá því í haust. Fjölniskonur urðu líka að skipta út einum erlenda leikmanni sinum en sú hin sama, Fiona O'Dwyer hafði líka misst af tveimur af þremur leikjum Grafarvogsliðsins í haust. Fiona O'Dwyer óskaði eftir að losna undan samningi og í staðinn fékk Fjölnir hina portúgölsku Söru Djassi. Búlgarski bakvörðurinn Iva Georgieva byrjaði tímabilið með Snæfelli en er nú kominn til Breiðabliks. Hún fór af landinu en kom aftur eftir áramót og samdi við Blika. Litháinn Kamile Berenyte færði sig líka um set. Hún byrjaði tímabilið hjá KR en er nú komin til Snæfells. Snæfellsliðið hefur nú líka fengið til sín hina bandarísku Haiden Denise Palmer sem missti af leikjum liðsins í haust. KR-konur fá hins vegar bæði hina bandarísku Taryn McCutcheon og hina finnsku Anniku Holopainen til baka og auk þess er Ástrós Lena Ægisdóttir komin aftur heim frá Danmörku. Stöð 2 Sport sýnir tvo leiki í beinni í kvöld. Útsending frá leik Fjölnis og Hauka hefst klukkan 18.05 en útsending frá leik Vals og Skallagríms hefst klukkan 20.10. Báðir leikir eru sýndir á Stöð 2 Sport. Hinir tveir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15 og eru: Breiðablik-Keflavík og Snæfell-KR. Hér fyrir neðan má sjá breytingarnar á liðunum átta síðan að deildin var sett í lás í október. Breytingar á liðum Domino´s deild kvenna: [Raðað eftir stig og sæti liðanna í deildinni] 1. Fjölnir 6 stig Inn: Sara Djassi Út: Fiona O' Dwyer 2. Skallagrímur 4 stig Engar breytingar 3. Haukar 4 stig Engar breytingar 4. Keflavík 2 stig Engar breytingar 5. Valur 2 stig Inn: Kiana Johnson, Hildur Björg Kjartansdóttir, Helena Sverrisdóttir Út: Auður Íris Ólafsdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 6. Breiðablik 0 stig Inn: Iva Georgieva, Telma Lind Ásgeirsdóttir Út: Hafrún Erna Haraldsdóttir 7. Snæfell 0 stig Inn: Haiden Denise Palmer, Kamilé Berenyté Út: Iva Georgieva 8. KR 0 stig Inn: Ástrós Lena Ægisdóttir Út: Kamilé Berenyté
Breytingar á liðum Domino´s deild kvenna: [Raðað eftir stig og sæti liðanna í deildinni] 1. Fjölnir 6 stig Inn: Sara Djassi Út: Fiona O' Dwyer 2. Skallagrímur 4 stig Engar breytingar 3. Haukar 4 stig Engar breytingar 4. Keflavík 2 stig Engar breytingar 5. Valur 2 stig Inn: Kiana Johnson, Hildur Björg Kjartansdóttir, Helena Sverrisdóttir Út: Auður Íris Ólafsdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 6. Breiðablik 0 stig Inn: Iva Georgieva, Telma Lind Ásgeirsdóttir Út: Hafrún Erna Haraldsdóttir 7. Snæfell 0 stig Inn: Haiden Denise Palmer, Kamilé Berenyté Út: Iva Georgieva 8. KR 0 stig Inn: Ástrós Lena Ægisdóttir Út: Kamilé Berenyté
Dominos-deild kvenna Valur Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Í beinni: Valur - Olympiacos | Fyrri úrslitaleikur Vals í Evrópubikarnum Handbolti Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Fótbolti Fleiri fréttir Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Hvað var LeBron að gera í Cleveland? Benedikt Guðmundsson hættur með Njarðvík: Ofboðslega þakklátur „Rosalega mikilvægt fyrir okkur og samfélagið í Grindavík“ „Þeir hittu bara ógeðslega vel og við áttum bara engin svör“ Kristófer Acox: „Fokkin passion“ „Ákváðum að byrja fyrstu fimm mínúturnar í þriðja af krafti“ Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Grindavík - Keflavík 112-63 | Grindvíkingar í úrslit eftir ruglaðan síðari hálfleik